Forvarnardagurinn, sem haldinn er að frumkvæði forseta Íslands í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga, Ungmennafélags Íslands, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Bandalag skáta, Reykjavíkurborgar o.fl., var haldinn í þriðja sinn 6. nóvember 2008. Að venju fólst dagskráin í verkefnavinnu í öllum 9. bekkjum landsins með það að markmiði að fá skoðanir unglinganna sjálfra á því hvað hvetur þá til heilsusamlegs lífernis, …
Aðalskipulag Borgarbyggðar
Vakin er athygli á nýrri uppfærslu aðalskipulagsáætlunar Borgarbyggðar 2008-2020 sem nú er komin á netið, hana má nálgast hér. Stefnumörkun og umfjöllun er enn í vinnslu, svo eðlilegt er að hnjóta um eitthvað sem betur má fara. Ábendingar og fyrirspurnir óskast sendar á tölvupósti til Sigurjóns Einarssonar, verkefnastjóra stýrihóps um aðalskipulag, netfang: se@borgarbyggd.is eða á Landlínur ehf, netfang: landlinur@landlinur.is …
Frumkvöðull á Vesturlandi
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi óska eftir tilnefningum um einstaklinga sem eru þess verðir að hljóta sæmdarheitið frumkvöðull ársins 2008 á Vesturlandi og skara fram úr í þróun nýrrar vöru, þjónustu eða viðburða í landshlutanum. Dugnaður og frumkvæði eru mikilvægir eiginleikar í sérhverju samfélagi, ekki síst í smáum samfélögum. Þessir eiginleikar jafnvel fárra einstaklinga geta skipt sköpum um það hversu …
Nýr starfsmaður hjá Borgarbyggð
Halldór Gunnarson félagsráðgjafi hefur verið ráðinn til starfa hjá félagsþjónustu Borgarbyggðar. Halldór hefur þegar hafið störf. Halldór var lengi formaður Landsamtakanna Þroskahjálpar og hefur komið víða við hvað varðar málefni fatlaðra. Halldór er Borgfirðingur að ætt og uppruna og var kúasmali fleiri sumur á Ásbjarnarstöðum. Hann er eins og fyrr segir menntaður félagsráðgjafi og mun starfa við alla almenna félagsþjónustu …
Tónleikar Samkórs Mýramanna
Samkór Mýramanna heldur sína árlegu miðsvetrartónleika fimmtudaginn 12. mars næstkomandi. Tónleikarnir hefjast klukkan 20:30 og verða í Borgarneskirkju. Að venju mun kórinn bjóða til sín gestasöngvara. Að þessu sinni er það stórsöngvarinn og skemmtikrafturinn Örn Árnason. Stjórnandi kórsins er Jónína Erna Arnardóttir. Allir eru velkomnir, frítt er inn en kassi fyrir frjáls framlög verður til staðar. …
LBHÍ – Út með ágrip
Föstudaginn 13. mars verður efnt til málþings á Hvanneyri um leiðir til þess að koma í veg fyrir ágrip og aðra áverka í tengslum við sýningar hrossa. Málþingið hefst kl. 17 og stendur til kl. 20. Það verður haldið í Árssal í Ásgarði (Nýi skóli). Þeir sem vilja sækja málþingið geta sent tölvupóst með á netfangið endurmenntun@lbhi.is. Þar þarf að …
Lífrænn landbúnaður og umhvefisvæn ferðaþjónusta
mynd_GJLanbúnaðarháskóli Íslands á Hvanneyri tekur nú þátt í Evrópuverkefninu Oats; Organic Agricultural Tourism. Í verkefnisstjórn sitja Ragnhildur Sigurðardóttir, Þorsteinn Guðmundsson og Ásdís Helga Bjarnadóttir. Verkefninu er ætlað að styðja við lífrænan landbúnað og umhverfisvæna ferðaþjónustu og auka menntunartækifæri á þessu sviði. Þátttakendur koma frá Ítalíu, Spáni, Portúgal, Tyrklandi, Þýskalandi og Danmörku auk Íslands. Verkefnið byrjaði 1.október 2008 og því líkur …
Hverjar eru konurnar?
Ef þið þekkið þessar konur á myndinni vinsamlegast sendið nöfn þeirra á skjalasafn@safnahus.is eða hringið í Jóhönnu Skúladóttur í síma 430 7206.
Minningargjöf
Sverrir Heiðar Jón Kristleifsson Á dögunum barst nemendum í 8.-10. bekk Grunnskóla Borgarfjarðar gjöf til minningar um þá Jón Kristleifsson á Sturlu-Reykjum og Sverri Heiðar Júlíusson á Hvanneyri. Báðir létust þeir í vetur, langt um aldur fram. Jón Kristleifsson annaðist skólaakstur um tveggja áratuga skeið við skólann og hafði sérstakt yndi af öllum skemmti- og fræðsluferðum með nemendum. Sverrir Heiðar …
Umhverfisvika í Varmalandsskóla
Í grunnskólanum á Varmalandi stendur nú yfir umhverfisvika. Eins og nafnið gefur til kynna þá er þema vikunnar umhverfið en skólinn vinnur nú að því að fá að flagga Grænfánanum eftirsótta. Hefðbundin bekkjarkennsla er brotin upp en list, verkgreina og íþróttatímar eru látnir halda sér. Nemendur yngri deildar skólans þ.e. 1. – 7. bekkjar vinna að verkefnum tengdum umhverfinu, endurvinnslu …