Hreinsunardagur í Borgarnesi

Starfsfólk í ráðhúsi Borgarbyggðar ásamt fulltrúum úr sveitarstjórn lagði sitt af mörkum í dag, í hreinsunarátaki sveitarfélagsins í Borgarnesi. Tekið var til í nágrenni ráðhússins og beð hreinsuð af miklum skörungsskap. Að verki loknu var svo haldið til grillveislu í Skallagrímsgarði. Meðfylgjandi mynd er tekin af hópnum að loknu verki. Frá vinstri: Þór Þorsteinsson, Baldur Tómasson, Björg Gunnarsdóttir, Hjördís H. …

Tilkynning frá Ungmennafélaginu Skallagrími

Tilkynning vegna fyrirhugaðs átaks í öflun félagsmanna og leiðréttingar á félagaskrá Skallagríms. Ungmennafélagið Skallagrímur er félag sem samanstendur af 6 deildum, badmintondeild, frjálsíþróttadeild, körfuknattleiksdeild, knattspyrnudeild, sunddeild og leikdeild. Markmið félagsins eru að vekja löngun félagsmanna til þess að stunda líkamsrækt og alhliða íþróttaiðkun, auka áhuga á hverskonar félags- og tómstundastarfi, vernda þjóðlega menningu og hvetja félagsmenn til að vinna að …

Menningarlandið 2009

Menntamálaráðuneyti, iðnaðarráðuneyti og Samband íslenskra sveitarfélaga, í samstarfi við menningarráð landsbyggðarinnar boðar til ráðstefnu á Hótel Stykkishólmi dagana 11. og 12. maí n.k. Sjá auglýsingu hér Fjallað verður um reynsluna af menningarsamningunum og spurt hver árangur hafi orðið og hvert beri að stefna. Hvernig getum við nýtt okkur menningu og menningartengda ferðaþjónustu til nýrrar sóknar í nýsköpun og nýtingu menningararfs …

Fundi um skólamál frestað

Fyrirhuguðum fundi um skólamál sem vera átti á Hvanneyri í kvöld hefur verið frestað til þriðjudagsins 5. maí kl. 20.30.  

Karlakór Reykjavíkur í Geirabakaríi

Karlakór Reykjavíkur verður með ljúfan morgunsöng í Geirabakarí að morgni Verkalýðsdagsins 1. maí. Kórinn kemur við í bakaríinu upp úr kl. 9.00 og syngur nokkur lög. Allir velkomnir.  

Aðalfundur Samfés haldinn í Reykholti Borgarfirði

Bjarni, Heiðrún, Lúðvík, Sissi og Atli í ReykholtiAðalfundur Samfés samtaka félagsmiðstöðva á Íslandi var haldinn í Reykholti Borgarfirði fimmtudaginn 16. apríl s.l.   Um 70 – 80 fulltrúar úr félagsmiðstöðvum landsins mættu en félagsmiðstöðvar innan samtakanna eru nú rúmlega hundrað talsins.     Miklar og fjörugar umræður voru á fundinum að vanda og ljóst að Samfés eins og önnur félög …

Fundur um framtíð skólahalds – 2009

Fræðslunefnd Borgarbyggðar stendur fyrir umræðufundi með foreldrum barna í Grunnskóla Borgarfjarðar miðvikudaginn 29. apríl kl. 20.30 í fundarsal Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri. (3. hæð) Umræðuefnið er framtíð skólahalds. Allir foreldrar eru hvattir til að mæta.    

Hallsteinssalur í Safnahúsi

Á sumardaginn fyrsta var opnuð í Safnahúsi Borgarfjarðar í Borgarnesi sýning á verkum úr listaverkasafni hins mæta listvinar Hallsteins Sveinssonar frá Eskiholti. Við þetta sama tækifæri var sal hússins gefið nafn og heitir hann nú Hallsteinssalur. Sýningin er tileinkuð Bjarna Bachmann safnverði sem vann ötullegt starf fyrir söfnin í Borgarfirði um aldarfjórðungsskeið. Verkin eru eftir marga af þekktustu listamönnum landsins …

Sópun á götum og gangstéttum

Nú í vikunni og fram í næstu viku verða gangstéttar og götur sópaðar í Borgarnesi og á Hvanneyri. Íbúar eru vinsamlega hvattir til að leggja bílum sínum þannig að sópun geti gengið greiðlega. Það er fyrirtækið HS-Verktak sem mun annast verkið. Hafa má samband við Halldór hjá HS-Verktak í síma 892-3044 varðandi ábendingar eða nánari upplýsingar um verkið.    

Matjurtagarðar í Borgarbyggð

Íbúum Borgarbyggðar gefst kostur á að taka á leigu matjurtagarða og rækta sitt eigið grænmeti í sumar. Matjurtargarðarnir eru við gróðrastöðina Gleym-mér-ei í Borgarnesi og við gömlu loðdýrahúsin á Hvanneyri. Í boði eru tvær stærðir garða í Borgarnesi og þrjár á Hvanneyri. Leiguverð er á bilinu 1 – 5.000 kr. eftir stærð. Þeir sem hafa áhuga á að leigja sér …