Sundlaugin á Kleppjárnsreykjum lokuð

Sundlaugin á Kleppjárnsreykjum í Borgarfirði verður lokuð vegna framkvæmda frá 7. til 24. ágúst. Sundáhugafólki er á þessum tíma bent á sundlaugarnar í Húsafelli, Varmalandi, Borgarnesi og Hreppslaug í Andakíl.  

Grunnskóli Borgarfjarðar – matráður og skólaliði

Laus störf í Grunnskóla Borgarfjarðar næsta skólaár. Staða matráðs í Hvanneyrardeild skólans og staða skólaliða í Varmalandsdeild. Allar nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir skólastjóri í síma 847-9262. Einnig má senda fyrirspurnir á netfang inga@gbf.is  

Til foreldra vegna bæjarhátíða sumarsins

Fjölskyldan saman á bæjarhátíðum og foreldrar góðar fyrirmyndir!   Bæjarhátíðir eru árlegur viðburður á mörgum stöðum. Litlir sem stórir bæir víðs vegar um landið lifna við og taka stakkaskiptum. Hús, garðar og götur eru skreytt og mikil stemning myndast. Íbúar kappkosta að sýna gestum það besta sem bærinn þeirra hefur upp á að bjóða og gera hátíðina í ár betri …

Brother Grass í Skallagrímsgarði

Hljómsveitin Brother Grass ásamt Samfélagssjóði Landsvirkjunar og Menningarráði Vesturlands bjóða íbúum Borgarbyggðar og nágrennis, ungum sem öldnum á þátttökutónleika í Skallagrímsgarði, mánudaginn 9. júlí kl 13:00.Hljómsveitin samanstendur af 4 söngkonum og einum gítarleikara og er því mikil áhersla lögð á þéttar raddsetningar og vandaðan gítarleik en einnig leika meðlimir sveitarinnar á hin ýmsu hljóðfæri og hljóðgjafa sem eru í óhefðbundnari …

Uppgjör vinnuskólans

Krakkar sem starfað hafa í vinnuskóla Borgarbyggðar í sumar eru velkomnir í Skallagrímsgarð kl:10:00 mánudaginn 9. júlí n.k. þar sem framin verða almenn skemmtilegheit og sumarið gert upp. Í hádeginu ætlum við að grilla handa starfsmönnum vinnuskólanns og taka þátt í tónleikum hjá Brother Grass og enda svo daginn á að fara í sund í boði vinnuskólanns og íþróttamiðstöðvar.   …

Hreinsun rotþróa hafin hjá Borgarbyggð

Hafin er vinna við hreinsun rotþróa í Borgarbyggð fyrir sumarið 2012 en Holræsa- og stífluþjónustu Suðurlands sér um losun rotþróa í sveitarfélaginu. Samningur sveitarfélagsins við verktakann miðar við að hver rotþró sé tæmd einu sinni á þriggja ára fresti. Til þess að hreinsun geti gengið auðveldlega fyrir sig þurfa húseigendur að tryggja óheft aðgengi að lóðum sínum og sjá til …

Vantar þig vinnu næsta vetur?

Grunnskóli Borgarfjarðar auglýsir eftir starfsfólki í eftirtalin störf næsta skólaár:   Í Hvanneyrardeild skólans vantar matráð, starfsmann í skólasel í 40 % starfshlutfall og stuðningsfulltrúa í 50% starfshlutfall.   Í Varmalandsdeild vantar skólaliða í rúmlega 80% stöðuhlutfall og í Kleppjárnsreykjadeild vantar skólaliða í 100%   Grunnskóli Borgarfjarðar er heilsueflandi skóli og mikilvægt að matráður hafi þekkingu og áhuga á að …

Forsetakosningar í Borgarbyggð

Við forsetakosningar laugardaginn 30. júní 2012 er skipan í kjördeildir í Borgarbyggð sem hér segir: Borgarneskjördeild í Hjálmakletti (menntaskólanum) í Borgarnesi Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Langár og Gljúfurár. Kjörfundur hefst kl. 9,oo og lýkur kl. 22,oo Lindartungukjördeild í félagsheimilinu Lindartungu Þar kjósa íbúar í fyrrum Kolbeinsstaðahreppi. Kjörfundur hefst kl. 10,oo og lýkur kl. 20,oo Lyngbrekkukjördeild í félagsheimilinu Lyngbrekku …

Vel heppnuð Brákarhátíð

Það var líf og fjör á Brákarhátíð sem fram fór í fjóða sinn um síðustu helgi. Dagskráin var fjölbreytt og hófst með skartgripagerð að víkingasið í Landnámssetrinu, Fornbílaklúbbur Borgarness opnaði formlega í Brákarey, gengin var skrúðganga, fjölskylduskemmtun og markaður í Skallagrímsgarði, götugrill og dansleikur í Hjálmakletti svo fátt eitt sé talið. Veðurguðirnir léku við gesti og íbúa sem höfðu skreytt …