Þorsteinn, Áslaug og dæturNæstsíðasta dagskrá vetrarins í fyrirlestraröð Snorrastofu í Reykholti, Fyrirlestrar í héraði, verður haldin í Bókhlöðu stofnunarinnar þriðjudaginn 8. apríl næstkomandi. Þá verður fjallað um bóndann á Úlfsstöðum, Þorstein Jónsson og konu hans Áslaugu Aðalheiði Steinsdóttur, sem bæði eru látin. Framsögu hafa Ragnhildur dóttir þeirra og tengdasonurinn Sveinn Víkingur Þórarinsson, sem bæði búa á Úlfsstöðum. Einnig mun dóttursonur …
Opnun íþróttamiðstöðvar eftir breytingar – afsláttur á árskortum
Laugardaginn 5. apríl verður þreksalur og innisundlaug íþróttamiðstöðvarinnar í Borgarnesi opnuð eftir viðgerðir og endurbætur sem staðið hafa yfir í nokkurn tíma. Opnunarhátíð verður þann dag í íþróttamiðstöðinni og er hægt að sjá dagskrá hennar með því að smella hér. Ákveðið hefur verið að gefa 10% afslátt af öllum árskortum í þrek og/eða sund íþróttamiðstöðva Borgarbyggðar sem keypt eru …
Íbúafundir á Hvanneyri og í Logalandi
Borgarbyggð boðar íbúa til fundar um þjónustu sveitarfélagsins, helstu framkvæmdir sem framundan eru og þau mál sem efst eru á baugi í dag. Á fundunum munu sveitarstjóri og sviðsstjórar sveitarfélagsins ræða þessi málefni við íbúa. Fundirnir í dag, fimmtudaginn 3. apríl, fara fram í Skemmunni á Hvanneyri, kl. 17.00 og í Logalandi, kl.20.30 Íbúar eru hvattir til að mæta …
Styrkir vegna fasteignaskatts félaga og félagasamtaka – 2014
Styrkir til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 16. maí 2007 reglur um styrki til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka skv. 2. mgr. 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995. Félög og félagasamtök geta nú sótt um styrk til greiðslu fasteignaskatts fyrir árið 2014. Umsóknarfrestur er til 1. maí 2014 og skal öllum …
Ársskýrsla Safnahúss Borgarfjarðar
Ársskýrsla Safnahúss Borgarfjarðar fyrir árið 2013 er komin út. Skýrslan er 25 síður og gefur góða mynd af starfsemi safnanna á árinu. Höfundar eru þrír, þau Guðrún Jónsdóttir, Jóhanna Skúladóttir og Sævar Ingi Jónsson. Ársskýrsluna má sjá hér.
Gaman á árshátíð á Hvanneyri
Árshátíð Hvanneyrardeildar Grunnskóla Borgarfjarðar var haldin í Halldórsfjósi á Hvanneyri síðastliðinn fimmtudag. Nemendur sýndu stórskemmtilegan leik í atriðum sínum en 1.-2. bekkur flutti skemmtilegt bangsaleikrit sem þau unnu í tengslum við þema undanfarinna vikna í skólanum. Eldri krakkarnir sýndu leikritið Flóttafólkið en það fjallar eins og nafnið gefur til kynna um flóttafólk sem þarf að flytja til ókunnugs lands. Þau …
ADHD – kynningarfundir í Hjálmakletti
Kynningarfundur ADHD samtakanna verður haldinn í Borgarnesi fimmtudaginn 3. apríl 2014 kl. 14.30 í Hjálmakletti, í samvinnu við Velferðarráðuneytið. Fundurinn er ætlaður starfsfólki leik-, grunn- og framhaldsskóla, sérfræðingum í skóla- og félagsþjónustu og öllum þeim sem starfa með börnum, ungmennum eða fullorðnum með ADHD. Efni fundar: Hvað er ADHD og hvað gera ADHD samtökin? Elín Hoe Hinriksdóttir sérkennari og formaður …
Íbúafundur í Hjálmakletti – Saga Borgarness
Laugardaginn 29. mars verður haldinn íbúafundur í Hjálmakletti þar sem fjallað verður um sögu Borgarness. Borgnesingum, núverandi og fyrrverandi og öðrum áhugamönnum um sögu bæjarins gefst þar tækifæri á að lýsa skoðunum sínum á því hvað ætti að leggja áherslu á við söguritunina og koma með ábendingar. Páll Brynjarsson bæjarstjóri setur fundinn og fjallar um undirbúning verksins. Egill Ólafsson sagnfræðingur …
Íbúafundir framundan
Borgarbyggð boðar íbúa til fundar um þjónustu sveitarfélagsins, helstu framkvæmdir sem framundan eru og þau mál sem efst eru á baugi í dag. Á fundunum munu sveitarstjóri og sviðsstjórar sveitarfélagsins ræða þessi málefni við íbúa. Fundirnir fara fram á eftirtöldum stöðum: Lindartunga, mánudaginn 31. mars, kl. 20.30 Háskólinn á Bifröst, þriðjudaginn 1. apríl, kl. 17.30 Þinghamar, Varmalandi, þriðjudaginn …
Ályktun um Landbúnaðarháskóla Íslands
Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í morgun var m.a. rætt um málefni Landbúnaðarháskóla Íslands og svohljóðandi ályktun samþykkt samhljóða: „Byggðaráð Borgarbyggðar ítrekar þá afstöðu sína að það sé farsælast fyrir Landbúnaðarháskóla Íslands að vera áfram sjálfstæður skóli. Í kjölfar þess að mennta- og menningarmálaráðherra tilkynnti fyrir skömmu að ekki kæmi til sameiningar LBHÍ og HÍ hafa ráðherra og yfirstjórn skólans …