Réttindaskóli

Grunnskóli Borgarfjarðar hóf innleiðingaferli Réttindaskóla árið 2021 og hlaut fyrstu viðurkenningu haustið 2024. Stefnt er að næstu viðurkenningu haustið 2027 og vinnur nú eftir aðgerðaráætluninni sinni.

Réttindaskólar byggja starf sitt á Barnasáttmálanum en hann felur í sér alþjóðlega viðurkenningu á að börn þarfnist sérstakrar verndar umfram hina fullorðnu.

Réttindaskólar eru alþjóðlegt vottunarverkefni sem hefur borið mikinn árangur meðal annars í Bretlandi, Kanada og Norðurlöndum. Verkefnið felst í að fræða börn um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem tekur á öllum þeim réttindum sem börn öðlast við fæðingu og hafa til átján ára aldurs.

Heimasíða Réttindaskóla UNICEF

Kynning á skólanum (myndband)
Skýrsla Réttindaráðs Grunnskóla Borgarfjarðar (myndband)