Hita hefur nú verið komið á hlaupabrautina á íþróttavellinum í Borgarnesi. Árið 2009 var ákveðið að slökkva á hitanum í sparnaðarskyni og hafa íþróttavöllur og hlaupabraut verið óupphituð síðan. Stór hluti íþróttavallarins(grasvallarins) er með hitalögnum og tvær af sex hlaupabrautum einnig en hringurinn er um 400m að ummáli. Til fróðleiks má geta þess að hitaslaufan í hlaupabrautunum er samtals 5.000m …
Rúlluplastsöfnun 2014
Boðið verður upp á söfnun rúlluplasts frá lögbýlum í Borgarbyggð þrisvar á árinu 2014. Sjá hér auglýsingu.
Íþróttamiðstöðin í Borgarnesi
Dagskrá íþróttamiðstöðvarinnar í Borgarnesi frá áramótum er komin út. Hana má nálgast hér.
Útihúsin rifin
Samið hefur verið við HSS verktak ehf. um niðurrif á gömlum útihúsum við Gunnlaugsgötu 21B í Borgarnesi. Verðkönnun var gerð og átti HSS verktak ehf. lægsta boð, kr. 750.000. Kostnaðaráætlun var kr. 1.200.000. Verkinu á að vera lokið 1. febrúar 2014.
Sorphirðudagatal fyrir árið 2014
Sorphirðudagatal fyrir árið 2014 er komið á heimasíðuna. Sjá hér.
Hlíðartúnshúsin í Borgarnesi
Í sumar var unnið að við uppbyggingu Hlíðartúnshúsanna, við Borgarbraut í Borgarnesi. Verkefnið hefur á undanförnum árum, síðan árið 2009, hlotið styrk frá húsafriðunarsjóði Minjastofnunar Íslands. Sumarið 2012 var lokið við endurnýjun kartöflukofans og sumarið 2013 var unnið við jarðvinnu og hlaðnar undirstöður fyrir hlöðuna. Verktakar í verkinu voru HSS-Verktak jarðvinnuverktaki og Unnsteinn Elíasson hleðslumaður frá Ferjubakka auk annarra. Sjálfa …
Samið við HSS verktak ehf.
Byggðarráð Borgarbyggðar ákvað á fundi sínum þann 2. janúar síðastliðinn að fela Umhverfis- og skipulagssviði að ganga til samninga við HSS verktak ehf. um snjómokstur og hálkuvarnir í Borgarnesi. Í desember var gerð verðkönnun meðal nokkurra verktaka og voru tilboð þeirra opnuð þann 27. desember að viðstöddum þeim verktökum sem það kusu. Sjö tilboð bárust, það hæsta hljóðaði upp á …
Íþróttamaður Borgarfjarðar – tilnefningar óskast
Ungmennasamband Borgarfjarðar óskar eftir tilnefningum frá almenningi til íþróttamanns Borgarfjarðar 2013. Tilnefningum má skila á netfangið umsb@umsb.is eða senda á skrifstofu UMSB að Borgarbraut 61, 310 Borgarnesi í síðasta lagi mánudaginn 13. janúar 2014. Í tilnefningunni þarf að koma fram nafn íþróttamanns sem er tilnefndur og íþróttagrein sem hann er …
Góð aðsókn í Safnahús Borgarfjarðar
Áhugasamir gestir í SafnahúsiMjög góð aðsókn var á sýningar í Safnahúsi Borgarfjarðar á síðasta ári. Gestir sem skoðuðu sýningar Safnahúss á árinu 2013 voru tæplega 60 prósent fleiri en árið áður og er það afar ánægjuleg þróun. Heimsóknum á skjalasafn fjölgaði einnig nokkuð en aðsókn að bókasafninu var lítið eitt minni en árið 2012. Alls komu um 11 þúsund …
Fjölmennur fundur um þjóðlendukröfur
Í gær, mánudaginn 6. janúar 2014 var haldinn í ráðhúsi Borgarbyggðar, fjölmennur fundur landeigenda í Borgarbyggð. Fjallað var um kröfur ríkisins um þjóðlendur í Borgarbyggð. Á fundinum var farið yfir kröfur ríkisins og með hvað hætti landeigendur munu taka til varna gagnvart þessum kröfum. Sveitarfélagið og heimamenn hafa frest til 20. mars til að skýra eignarrétt sinn á þeim svæðum …