Kynningarfundur á keppnisgreinum á Landsmóti UMFÍ 50+ verður haldinn í íþróttahúsinu í Borgarnesi fimmtudaginn 22. maí kl 19.30. Sigurður Guðmundsson frá UMFÍ mætir á fundinn til að kynna mótið sem verður haldið á Húsavík dagana 20.-22. júní í sumar. Sérstök kynning verður á ringo að kynningu lokinni. Ringo svipar mjög til blaks. Sömu reglur eru í ringo og blaki nema …
Ársreikningur Borgarbyggðar 2013
Ársreikningur Borgarbyggðar fyrir árið 2013 eru nú aðgengilegir á vefnum. Ársreikninginn má nálgast hér og sundurliðanir hér.
Bjarni heimsótti nemendur á Hvanneyri
Á föstudaginn kom Bjarni á Mófellsstöðum í heimsókn í Hvanneyrardeild Grunnskóla Borgarfjarðar. Hann sagði nemendum frá föðurbróður sínum Þórði á Mófellsstöðum en krakkarnir voru nýbúin að fræðast um hann í Safnahúsinu. Bjarni náði vel til krakkanna, þau hlustuðu af athygli og þótti heimsóknin virkilega skemmtileg. Að lokum sungu krakkarnir fyrir Bjarna. Heimsókn sem þessi er hluti af markmiðum skólans fyrir …
Árshátíð unglinga á Kleppjárnsreykjum
Nemendahópurinn Árshátíð unglingadeildar Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum verður haldinn fimmtudaginn 22. maí í félagsheimilinu Logalandi. Nemendur sýna leikritið Uppreisn Æru eftir Ármann Guðmundsson í leikstjórn Ásu Hlínar Svavarsdóttur. Skemmtunin byrjar kl. 20.00 og sjoppa verður opin í hléi.
Matjurtagarðar Borgarbyggðar
Matjurtagarðar Borgarbyggðar verða ekki tilbúnir til afhendingar fyrr en eftir miðja næstu viku þar sem fyrri tæting getur ekki farið fram fyrr en um helgina og sú síðari í byrjun næstu viku. Samdægurs verða þá garðarnir afmarkaðir og merktir þeim sem hafa pantað garð. Starfsmaður Borgarbyggðar mun hafa samband við alla þá sem pantað hafa garð um leið og þeir …
Skýrslur um málefni aldraðra og fatlaðra íbúa
Vakin er athygli á því að skýrsla vinnuhóps um þjónustu við aldraðra í Borgarbyggð og skýrsla um málefni fatlaðra í Borgarbyggð eru aðgengilegar á vef sveitarfélagsins. Skýrslu um þjónustu við aldraðra í Borgarbyggð má lesa hér. Skýrslu um málefni fatlaðra í Borgarbyggð má lesa hér.
Styrkur til Uglukletts – góð geðheilsa gulli betri
Stjórn Lýðheilsusjóðs hefur úthlutað styrkjum úr Lýðheilsusjóði fyrir árið 2014. Leikskólinn Ugluklettur í Borgarnesi fékk úthlutað 500.000 kr. til verkefnisins „Heilsueflandi leikskóli – Jákvæð sálfræði í leikskólastarfi“. Styrkinn á að nýta til að innleiða geðræktarkaflann í verkefninu Heilsueflandi leikskóli og til að auka enn frekar þekkingu á sviði Jákvæðrar sálfræði. Lýðheilsusjóður er á vegum Landlæknisembættisins.
Framboðsfundir í Borgarbyggð
Framboðsfundir í Borgarbyggð fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 31. maí n.k. verða haldnir á eftirtöldum stöðum: Mánudaginn 19. maí kl. 20.30 í félagsheimilinu Lindartungu Þriðjudaginn 20. maí kl. 20.30 í félagsheimilinu Logalandi Miðvikudaginn 21. maí kl. 20.00 í Hjálmakletti í Borgarnesi Á fundunum verða öll framboð með framsögu. Að þeim loknum verða pallborðsumræður með fulltrúum framboðanna þar sem fundarmönnum gefst kostur á …
Umhverfisviðurkenningar 2014
Umhverfis-, skipulags- og landbúnaðarnefnd Borgarbyggðar mun veita umhverfisviðurkenningar í fjórum flokkum í ár. Íbúar eru hvattir til að senda inn tilnefningar um hverjir eigi að hljóta viðurkenningar í hverjum flokki. Vinsamlega sendið tilnefningar til Bjargar Gunnarsdóttur umhverfis- og landbúnaðarfulltrúa í bréfi eða á netfangið bjorg@borgarbyggd.is fyrir 31. júlí 2014. Sjá auglýsingu hér. Hér má sjá verðlaunahafa undanfarinna ára.
Leikskólinn Klettaborg fær styrk
Stjórn Lýðheilsusjóðs hefur úthlutað styrkjum úr Lýðheilsusjóði fyrir árið 2014. Leikskólinn Klettaborg í Borgarnesi fékk úthlutað 500.000 kr. til verkefnisins: „Heilsueflandi leikskóli – gaman, saman“. Klettaborg er tilraunaleikskóli hjá Embætti Landlæknis fyrir heilsueflandi leikskóla og kemur styrkurinn sé vel í áframhaldandi starfi. Þetta er í annað sinn sem Klettaborg fær styrk úr sjóðnum.