Stjórn Lýðheilsusjóðs hefur úthlutað styrkjum úr Lýðheilsusjóði fyrir árið 2014. Leikskólinn Klettaborg í Borgarnesi fékk úthlutað 500.000 kr. til verkefnisins: „Heilsueflandi leikskóli – gaman, saman“. Klettaborg er tilraunaleikskóli hjá Embætti Landlæknis fyrir heilsueflandi leikskóla og kemur styrkurinn sé vel í áframhaldandi starfi. Þetta er í annað sinn sem Klettaborg fær styrk úr sjóðnum.
Umhverfisverkefni sumarið 2014
Hér vinstra megin til hliðar undir ,,þjónusta við íbúa“ er búið að bæta við undirsíðu sem heitir ,,Umhverfisverkefni sumarið 2014″ Þar eru kynnt þau umhverfisverkefni sem íbúum er boðið að taka þátt í sumarið 2014. Fleiri verkefni eiga eftir að bætast við og verða þau auglýst sérstaklega hér á vefnum.
Auglýsing um framboðslista í Borgarbyggð
Laugardaginn 10. maí rann út framboðsfrestur til sveitarstjórnarkosninga í Borgarbyggð sem haldnar verða 31. maí n.k. Yfirkjörstjórn bárust fjórir framboðslistar og hefur hún úrskurðað að öll framboðin séu gild. Framboðslistar bárust frá Framsóknarflokknum, Sjálfstæðisflokknum, Samfylkingunni og Vinstri hreyfingunni grænu framboði. Til að sjá nöfn frambjóðenda á listunum þarf að smella á meira B listi D listi S listi V listi …
Laus störf fyrir háskólanema
Borgarbyggð auglýsir laus til umsóknar tvo störf sem ætluð eru háskólanemum. Skilyrði er að umsækjendur eigi lögheimili í Borgarbyggð og séu á milli anna í háskólanámi. Sundlaugarvarsla í Hreppslaug (í samstarfi við Umf. Íslending) Ungmennafélagið Íslendingur leitar að einstaklingi til starfa sem sundlaugarvörður við Hreppslaug í Skorradal. Um er að ræða 100 % starf á tímabilinu 6. júní – …
Grænfáninn í fimmta sinn
Á föstudag fékk Grunnskólinn í Borgarnesi afhentan Grænfánann í fimmta sinn. Skólinn var einn 12 grunnskóla sem skrifaði undir fyrstu samstarfsyfirlýsingu um Grænfánann þann 6. júní 2001, og er því búinn að vera í verkefninu í 13 ár. Markmið með Grænfánaverkefninu er að auka menntun og þekkingu og efla virðingu fyrir náttúru og umhverfi lands og hafs. Einnig að stuðla …
Vortónleikar Tónlistarskóla Borgarfjarðar
Nú fer vetrarstarfi Tónlistarskóla Borgarfjarðar að ljúka og verða vortónleikar nemenda dagana 12. – 15. maí. Þar munu nemendur flytja fjölbreytta dagskrá og í lok hverra tónleika fá nemendur afhent prófskírteini. Skólastarfi nemendanna lýkur með samspilsdögum mánudaginn 19. maí og þriðjudaginn 20. maí, en þá munu nemendur og kennarar safnast saman og spila og syngja saman, bæði úti og inni. …
Tryggvi tekur við skólaakstri
Tryggvi Valur Sæmundsson hefur tekið við skólaakstrinum í Borgarnesi þær þrjár vikur sem eftir er af skólaárinu og þeim leiðum sem Sæmundur Sigmundsson var með í Grunnskóla Borgarfjarðar. Sömu bílstjórar verða út skólaárið og verið hafa.
Umhverfisátak nemenda heldur áfram
Krakkarnir í Grunnskólanum í Borgarnesi hafa verið dugleg að snyrta til í Borgarnesi og hvetja til umhverfisátaks.Fjórðu bekkingar í skólanum lögðu leið sína að Safnahúsi Borgarfjarðar í gær og hreinsuðu til í kringum húsið og fjöruna fyrir neðan. Þau létu ekkert stoppa sig, teygðu hendur djúpt niður í grjótuppfyllinguna til að sækja plaspoka, sígarettustubba og annað drasl. Afraksturinn ruslatínslunnar má …
Tónleikar til styrktar Fjöliðjunni
Verkefni fyrir vinnandi hendur! Föstudaginn 9. maí næstkomandi verða haldnir styrktartónleikar í Hjálmakletti í Borgarnesi. Allur ágóði af tónleikunum rennur til Fjöliðjunnar í Borganesi og fer óskiptur í söfnunarsjóð til tækjakaupa. Fram koma Jónas Sig., Ingó veðurguð, Baggabandið, Grasasnar, Festival, Brother Grass Hallgrímur Oddsson og KK. Smellið á auglýsinguna til að stækka hana.
Norræn ungmennavika í Noregi
Dagana 28. júlí til 2.ágúst næstkomandi fer fram ungmennavika NSU í Noregi. Ungmennavika NSU rennur að þessu sinni inn í stórviðburð sem Norsk Frilynt heldur fyrir aðildarfélög sín í Noregi ár hvert og heitir SplæshCamp. Dagskráin er stórglæsileg og þema vikunnar að þessu sinni er leikhús, kvikmyndagerð og menning tengt norrænum glæpasögum. Á SplæshCamp mæta um 350 ungmenni víðsvegar frá …