Auglýsing um kjörskrá

Kjörskrá Borgarbyggðar vegna sveitarstjórnakosninganna sem fram fara 31. maí 2014 liggur frammi á afgreiðslutíma skrifstofu Borgarbyggðar að Borgarbraut 14, frá og með 21. maí til kjördags.    

Árshátíð unglinga á Kleppjárnsreykjum

Nemendahópurinn Árshátíð unglingadeildar Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum verður haldinn fimmtudaginn 22. maí í félagsheimilinu Logalandi. Nemendur sýna leikritið Uppreisn Æru eftir Ármann Guðmundsson í leikstjórn Ásu Hlínar Svavarsdóttur. Skemmtunin byrjar kl. 20.00 og sjoppa verður opin í hléi.    

Ársreikningur Borgarbyggðar 2013

Ársreikningur Borgarbyggðar fyrir árið 2013 eru nú aðgengilegir á vefnum. Ársreikninginn má nálgast hér og sundurliðanir hér.  

Bjarni heimsótti nemendur á Hvanneyri

Á föstudaginn kom Bjarni á Mófellsstöðum í heimsókn í Hvanneyrardeild Grunnskóla Borgarfjarðar. Hann sagði nemendum frá föðurbróður sínum Þórði á Mófellsstöðum en krakkarnir voru nýbúin að fræðast um hann í Safnahúsinu. Bjarni náði vel til krakkanna, þau hlustuðu af athygli og þótti heimsóknin virkilega skemmtileg. Að lokum sungu krakkarnir fyrir Bjarna. Heimsókn sem þessi er hluti af markmiðum skólans fyrir …

Skýrslur um málefni aldraðra og fatlaðra íbúa

Vakin er athygli á því að skýrsla vinnuhóps um þjónustu við aldraðra í Borgarbyggð og skýrsla um málefni fatlaðra í Borgarbyggð eru aðgengilegar á vef sveitarfélagsins. Skýrslu um þjónustu við aldraðra í Borgarbyggð má lesa hér. Skýrslu um málefni fatlaðra í Borgarbyggð má lesa hér.    

Matjurtagarðar Borgarbyggðar

Matjurtagarðar Borgarbyggðar verða ekki tilbúnir til afhendingar fyrr en eftir miðja næstu viku þar sem fyrri tæting getur ekki farið fram fyrr en um helgina og sú síðari í byrjun næstu viku. Samdægurs verða þá garðarnir afmarkaðir og merktir þeim sem hafa pantað garð. Starfsmaður Borgarbyggðar mun hafa samband við alla þá sem pantað hafa garð um leið og þeir …

Styrkur til Uglukletts – góð geðheilsa gulli betri

Stjórn Lýðheilsusjóðs hefur úthlutað styrkjum úr Lýðheilsusjóði fyrir árið 2014. Leikskólinn Ugluklettur í Borgarnesi fékk úthlutað 500.000 kr. til verkefnisins „Heilsueflandi leikskóli – Jákvæð sálfræði í leikskólastarfi“. Styrkinn á að nýta til að innleiða geðræktarkaflann í verkefninu Heilsueflandi leikskóli og til að auka enn frekar þekkingu á sviði Jákvæðrar sálfræði. Lýðheilsusjóður er á vegum Landlæknisembættisins.    

Framboðsfundir í Borgarbyggð

Framboðsfundir í Borgarbyggð fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 31. maí n.k. verða haldnir á eftirtöldum stöðum:   Mánudaginn 19. maí kl. 20.30 í félagsheimilinu Lindartungu Þriðjudaginn 20. maí kl. 20.30 í félagsheimilinu Logalandi Miðvikudaginn 21. maí kl. 20.00 í Hjálmakletti í Borgarnesi Á fundunum verða öll framboð með framsögu. Að þeim loknum verða pallborðsumræður með fulltrúum framboðanna þar sem fundarmönnum gefst kostur á …

Laus störf fyrir háskólanema

Borgarbyggð auglýsir laus til umsóknar tvo störf sem ætluð eru háskólanemum. Skilyrði er að umsækjendur eigi lögheimili í Borgarbyggð og séu á milli anna í háskólanámi.   Sundlaugarvarsla í Hreppslaug (í samstarfi við Umf. Íslending) Ungmennafélagið Íslendingur leitar að einstaklingi til starfa sem sundlaugarvörður við Hreppslaug í Skorradal. Um er að ræða 100 % starf á tímabilinu 6. júní – …

Laust starf á Varmalandi

Starfsmann(kvk) vantar við íþróttamiðstöðina á Varmalandi, frá 6. júní til 17. ágúst. Um fullt starf er að ræða. Umsækjandi þarf að vera orðin átján ára, standast sundpróf og hafa lokið skyndihjálparnámskeiði. Nánari upplýsingar veitir Ingunn í síma 437 1444, netfang: ingunn28@borgarbyggd.is