Mikil þróun á sér stað innan Grunnskólans í Borgarnesi og einstakt tækifæri fólgið í því að vera hluti af þeirri sterku heild sem kennarar og starsfólks skólans mynda. Leitað er eftir einstaklingum sem eru tilbúnir að taka þátt í virku og skapandi skólastarfi með nemendum, samstarfsfólki og foreldrum. Við óskum eftir starfsmönnum í eftirfarandi stöður frá 1. ágúst 2014 …
Kynningarfundur – Keppnisgreinar á Landsmóti 50+
Kynningarfundur á keppnisgreinum á Landsmóti UMFÍ 50+ verður haldinn í íþróttahúsinu í Borgarnesi fimmtudaginn 22. maí kl 19.30. Sigurður Guðmundsson frá UMFÍ mætir á fundinn til að kynna mótið sem verður haldið á Húsavík dagana 20.-22. júní í sumar. Sérstök kynning verður á ringo að kynningu lokinni. Ringo svipar mjög til blaks. Sömu reglur eru í ringo og blaki nema …
Sjöundi bekkur á Kleppjárnsreykjum fær viðurkenningu
Úrslit liggja fyrir í samkeppninni Tóbakslaus bekkur en samkeppnin hefur verið meðal tóbakslausra 7. og 8. bekkja í skólum landsins í vetur. Í ár tóku 240 bekkir víðsvegar um landið þátt í keppninni. Krakkarnir í 7. bekk á Kleppjárnsreykjum útbjuggu veggspjald og sendu sem lokaverkefni í keppnina og var bekkurinn einn af tíu bekkjum sem hlutu vinning. Verðlaunaupphæðin nemur 5.000 …
Auglýsing um kjörskrá
Kjörskrá Borgarbyggðar vegna sveitarstjórnakosninganna sem fram fara 31. maí 2014 liggur frammi á afgreiðslutíma skrifstofu Borgarbyggðar að Borgarbraut 14, frá og með 21. maí til kjördags.
Ársreikningur Borgarbyggðar 2013
Ársreikningur Borgarbyggðar fyrir árið 2013 eru nú aðgengilegir á vefnum. Ársreikninginn má nálgast hér og sundurliðanir hér.
Bjarni heimsótti nemendur á Hvanneyri
Á föstudaginn kom Bjarni á Mófellsstöðum í heimsókn í Hvanneyrardeild Grunnskóla Borgarfjarðar. Hann sagði nemendum frá föðurbróður sínum Þórði á Mófellsstöðum en krakkarnir voru nýbúin að fræðast um hann í Safnahúsinu. Bjarni náði vel til krakkanna, þau hlustuðu af athygli og þótti heimsóknin virkilega skemmtileg. Að lokum sungu krakkarnir fyrir Bjarna. Heimsókn sem þessi er hluti af markmiðum skólans fyrir …
Árshátíð unglinga á Kleppjárnsreykjum
Nemendahópurinn Árshátíð unglingadeildar Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum verður haldinn fimmtudaginn 22. maí í félagsheimilinu Logalandi. Nemendur sýna leikritið Uppreisn Æru eftir Ármann Guðmundsson í leikstjórn Ásu Hlínar Svavarsdóttur. Skemmtunin byrjar kl. 20.00 og sjoppa verður opin í hléi.
Skýrslur um málefni aldraðra og fatlaðra íbúa
Vakin er athygli á því að skýrsla vinnuhóps um þjónustu við aldraðra í Borgarbyggð og skýrsla um málefni fatlaðra í Borgarbyggð eru aðgengilegar á vef sveitarfélagsins. Skýrslu um þjónustu við aldraðra í Borgarbyggð má lesa hér. Skýrslu um málefni fatlaðra í Borgarbyggð má lesa hér.
Matjurtagarðar Borgarbyggðar
Matjurtagarðar Borgarbyggðar verða ekki tilbúnir til afhendingar fyrr en eftir miðja næstu viku þar sem fyrri tæting getur ekki farið fram fyrr en um helgina og sú síðari í byrjun næstu viku. Samdægurs verða þá garðarnir afmarkaðir og merktir þeim sem hafa pantað garð. Starfsmaður Borgarbyggðar mun hafa samband við alla þá sem pantað hafa garð um leið og þeir …
Styrkur til Uglukletts – góð geðheilsa gulli betri
Stjórn Lýðheilsusjóðs hefur úthlutað styrkjum úr Lýðheilsusjóði fyrir árið 2014. Leikskólinn Ugluklettur í Borgarnesi fékk úthlutað 500.000 kr. til verkefnisins „Heilsueflandi leikskóli – Jákvæð sálfræði í leikskólastarfi“. Styrkinn á að nýta til að innleiða geðræktarkaflann í verkefninu Heilsueflandi leikskóli og til að auka enn frekar þekkingu á sviði Jákvæðrar sálfræði. Lýðheilsusjóður er á vegum Landlæknisembættisins.