Við leikskólann Hnoðraból í Reykholtsdal er laus staða leikskólakennara frá og með 7. ágúst n.k. Um er að ræða fulla stöðu leikskólakennara. Leikskólinn Hnoðraból er einnar deildar leikskóli. Þar eru að jafnaði 19 börn á aldrinum 18 mánaða til 5 ára og 6-7 starfsmenn. Menntunar- og hæfniskröfur leikskólakennara: • Leikskólakennaramenntun • Færni í mannlegum samskiptum • Sjálfstæð vinnubrögð • Skipulagshæfni, …
Brákarhátíð, litskrúðug og skemmtileg – en líka gagnleg
Það er ástæða til þess að þakka skipuleggjendum og undirbúningsaðilum að Brákarhátíðinni sem er að verða fastur liður hjá okkur í Borgarbyggð. Sá hópur sem að hátíðinni stendur og hefur staðið undanfarin ár hefur með krafti sínum og dug ýtt við okkur íbúum og fyrirtækjum til að skreyta í gulu, bláu og rauðu og ekki síst ýtt við okkur til …
Annar fundur nýkjörinnar sveitarstjórnar
Nýkjörin sveitarstjórn Borgarbyggðar kom í dag saman til síns annars fundar og þar var m.a. kosið í nefndir, ráð og stjórnir. Á fundinn mættu allir aðalmenn sveitarstjórnar og var meðfylgjandi mynd tekin við það tækifæri.
Rúlluplastssöfnun
Önnur rúlluplastssöfnun ársins sem fara átti fram á tímabilinu 10. – 24. júní hefur tafist af hálfu þjónustuaðila sveitarfélagsins til föstudagsins 27. júní.
Málefnasamningur meirihlutans
Hér er hægt að lesa málefnasamning meirihlutasamstarfs Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í sveitarstjórn Borgarbyggðar.
Björn Bjarki forseti sveitarstjórnar
Á 114. sveitarstjórnarfundi Borgarbyggðar þann 18. júní, sem jafnframt var fyrsti fundur viðtakandi sveitarstjórnar, var Björn Bjarki Þorsteinsson kosinn forseti sveitarstjórnar til eins árs. Finnbogi Leifsson var kosinn fyrsti varaforseti sveitarstjórnar og Geirlaug Jóhannsdóttir var kosin annar varaforseti.Kosning í byggðarráð: Guðveig Eyglóardóttir, Björn Bjarki Þorsteinsson og Magnús Smári Snorrason voru kosin í byggðarráð til eins árs og Finnbogi Leifsson, Jónína …
Ályktun um aðalstöð lögreglustjóra á Vesturlandi
Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar 12. júní s.l. var samþykkt svohljóðandi ályktun um aðalstöð lögreglustjóra á Vesturlandi: „Í umræðuskjali sem innanríkisráðuneytið hefur gefið út um breytingar á lögreglulögum og nýjum umdæmum lögreglu kemur fram að aðalstöð lögreglustjóra á Vesturlandi verði í Borgarnesi. Sveitarstjórn Borgarbyggðar tekur eindregið undir þessa tillögu og fagnar því að fyrirhugað er að aðalstöð lögreglustjóra verði í …
Sýning um íslenskt atvinnulíf
Sýning um íslenskt atvinnulíf var nýverið opnuð á Bifröst með pompi og prakt að viðstöddum fjölda gesta. Sýningin fjallar um íslensk fyrirtæki og er innsýn í verðmætasköpun þeirra og og hvernig starfsmenn sjá framtíð þeirra fyrir sér.Á sýningunni eru stór myndræn veggspjöld ásamt myndböndum og ljósmyndasýningu frá fyrirtækjum á öllum sviðum atvinnulífsins. Það er Háskólinn á Bifröst sem á veg …
Hátíðardagskrá á 17. júní
Þjóðhátíðardegi Íslendinga verður fagnað víða í sveitarfélaginu Á Hvanneyri stendur Ungmennafélagið Íslendingur fyrir dagskrá og þjóðhátíðargrilli. Hver og einn sér um að grilla fyrir sig. Grill á staðnum. Lagt verður af stað frá Sverrisvelli að Skjólbeltum kl. 11.00. Í Lindartungu verða Ungmennafélagið Eldborg og Kvenfélagið Björk með leiki og veitingar kl. 14.00. Í Brautartungu sér Ungmennafélagið Dagrenning um dagskrá sem …