Jólaball í Hjálmakletti 28. desember

Sameiginlegt jólaball allra barna í Borgarbyggð verður haldið í Hjálmakletti í Borgarnesi sunnudaginn 28. desember kl. 15.00 – 17.00. Dansað verður kringum jólatréð, jólasveinar kíkja við með glaðning og Skátarnir verða með kaffisölu. Allir velkomnir á þessa fjölskylduskemmtun. Sjá auglýsingu hér.  

Laus stöf á leikskólanum Andabæ

Í leikskólanum Andabæ á Hvanneyri eru laus störf leikskólakennara frá 5. janúar 2015. Um tvö 100% störf er að ræða. Allar nánari upplýsingar veitir Valdís Magnúsdóttir, leikskólastjóri í síma 437 7170 og 847 2447 eða um netfangið: andabaer@borgarbyggd.is Vakin er athygli á því að ef ekki fæst leikskólakennari til starfa verður ráðinn starfskraftur með aðra uppeldismenntun og /eða reynslu. Samkvæmt …

Akstur Strætó yfir jól og áramót

Akstur Strætó um jól og áramót verður sem hér segir:   Þorláksmessa – ekið samkvæmt áætlun. Aðfangadagur – ekið samkvæmt laugardagsáætlun, vagnarnir hætta akstri upp úr kl. 14.00 (nánari upplýsingar um hverja leið fyrir sig í leiðabók á strætó.is). Jóladagur – enginn akstur. Annar í jólum – ekið samkvæmt sunnudagsáætlun. Gamlársdagur – ekið er samkvæmt laugardagsáætlun, vagnarnir hætta akstri upp …

Jólamarkaður á Hvanneyri

Nostalgískur jólamarkaður verður á Hvanneyri laugardaginn 20. desember kl. 13.00 -17.00. Það verður markaðsstemming í hlöðu Halldórsfjóssins þar sem seljendur bjóða uppá góðgæti til að smakka á staðnum eða taka með sér heim auk þess sem hægt verður að kaupa síðustu jólagjafirnar. Í Hvanneyrarkirkju verður skemmtileg dagskrá samhliða markaðinum þar sem boðið verður uppá söng, upplestur og séra Flóki mun …

Innheimta – spörum pappírinn!

Breyting á innheimtu skóla- skólasels- tómstundaskóla og mötuneytisgjalda Eftir áramót mun Borgarbyggð hætta að senda út reikninga á pappír vegna skóla- og mötuneytisgjalda. Hægt er að skoða alla reikninga í ÍBÚAGÁTTINNI á heimasíðu Borgarbyggðar en það er þjónustusíða sem veitir viðskiptavinum sveitarfélagsins aðgang að viðskiptareikningum sínum. Hægt er að sjá yfirlit yfir viðskipti sem viðkomandi á við sveitarfélagið s.s. fasteignagjöld, …

Skipulagsauglýsingar í Borgarbyggð – 2014-12-17

Skipulagslýsingar vegna tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022og nýs deiliskipulags, afþreyingar- og ferðamannasvæði, ísgöng í Langjökli Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum þann 8.10.2014 að auglýsa skipulagslýsingu vegna tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 ásamt matslýsingu vegna ísganga í Langjökli, þ.e. nýtt afþreyingar- og ferðamannasvæði. Jafnframt er auglýst skipulagslýsing fyrir tillögu að deiliskipulagi ísganga í Langjökli ásamt matslýsingu. …

Laust grjót fjarlægt úr klettinum við menntaskólann

                          Búið er að fjarlægja laust grjót úr klettinum við Menntaskóla Borgarfjarðar. Slysahætta þótti af lausu grjóti þarna og því var ákveðið að ráðast í að fjarlægja það. Það voru Borgarverksmenn sem unnu verkið.  

Fjárhagsáætlun Borgarbyggðar – fréttatilkynning

Seinni umræða um fjárhagsáætlun Borgarbyggðar fyrir árið 2015 og þriggja ára áætlun 2016-2018 fór fram í Ráðhúsi Borgarbyggðar 15. desember sl.   Sveitarfélagið stendur frammi fyrir miklum launahækkunum og kröfu um rekstrarjafnvægi vegna halla í rekstri frá árinu 2013. Fjárhagsáætlun er lögð fram með 4,5 miljón króna afgangi af rekstri. Rekstrarjafnvægi næst ekki á þriggja ára grunni eins og sveitarstjórnarlög …