Borgarbyggð auglýsir íbúða- og iðnaðarlóðir lausar til umsóknar. Um er að ræða eftirtaldar lóðir: Íbúðarhúsnæði: 24 lóðir í Borgarnesi, 28 lóðir á Hvanneyri, 6 lóðir á Varmalandi, 3 lóðir í Reykholti, 4 lóðir í Ásbrún í Bæjarsveit, samtals 64 lóðir. Iðnaðar- og athafnalóðir: 18 lóðir í Borgarnesi, 2 lóðir á Hvanneyri. Samkvæmt gr. 39 í vinnureglum um úthlutun lóða í …
Breyttur opnunartími í ráðhúsi
Í dag terkur gildi nýr opnunartími í ráðhúsi Borgarbyggðar. Framvegis verður ráðhúsið opið frá kl. 9.30 – 12.00 og kl. 12.30 – 15.00.
Fundur hjá Snillingaforeldrum
Foreldrar barna með ADHD/ADD Fundur verður hjá Snillingaforeldrum fimmtudaginn 29. janúar kl. 20.00 í fundarsal Ráðhúss Borgarbyggðar, Borgarbraut 14 Borgarnesi. Drífa Björk Guðmundsdóttir, Dr. í sálfræði og ritari ADHD samtakanna verður með stutta fræðslu um þróun ADHD einkenna með áherslu á unglingsárin í byrjun fundar og síðan gefst tækifæri til spurninga og spjalls. Snillingaforeldrar er félagsskapur foreldra barna með ADHD/ADD. …
Íbúð til leigu í Borgarnesi – Íbúðalánasjóður
Íbúðalánasjóður auglýsir til leigu íbúð að Brákarbraut 4 í Borgarnesi Eignin eru auglýst á http://fasteignir.visir.is/ og http://www.mbl.is/leiga/ og hægt er að sækja um með því að senda inn umsókn á leiga@ils.is Þar á eingöngu að setja nafn eignar í subject, nafn umsækjanda, kt. og símanúmer í mailið. Eftir 2. febrúar verður unnið úr umsóknum og þeim svarað strax. Á meðan …
Sorphirða og sorphirðudagatöl
Eins og íbúar Borgarbyggðar hafa orðið varir við hafa verið nokkrar tafir á sorphirðu undanfarið. Fyrir því eru nokkrar ástæður m.a. slæmt veður og sú óheppilega staða kom upp að þrír bílar biluðu á sama tíma og ekki reyndist unnt að fá „afleysingabíla“ fyrir þá alla meðan á viðgerð stóð. Nú er reiknað með að það taki fram í miðja …
Áfram Borgarbyggð!
Næstkomandi föstudagskvöld mætir lið Borgarbyggðar enn og aftur í spurningakeppnina Útsvar á RUV. Borgarbyggð komst áfram í 16 liða úrslit þegar liðið sigraði lið Skagastrandar í nóvember. Nú etja þau kappi við lið Seltjarnarness og það lið sem ber sigur úr býtum fer áfram í átta liða …
Álagningu fasteignagjalda er lokið
Lokið er álagningu fasteignagjalda í Borgarbyggð árið 2015. Álagningarseðlar hafa verið sendir til fasteignaeigenda sem eru 67 ára og eldri og til fyrirtækja. Vakin er athygli á að allir álagningarseðlar eru aðgengilegir á „mínum síðum“ á netsíðunni www.Island.is. Einnig geta þeir sem þess óska haft samband við skrifstofu Borgarbyggðar og fengið senda álagningarseðla í pappírsformi. Gjalddagar eru tíu, sá fyrsti …
100 ára afmæli kosningaréttar kvenna á Íslandi
Snorrastofa og Borgarbyggð hafa tekið á móti farandsýningu Kvenréttindafélags Íslands, Á leið um landið, sem gerð er vegna 100 ára afmælis kosningaréttar íslenskra kvenna. Sýningin stendur í Bókhlöðu Snorrastofu og mun við lok janúarmánaðar halda för sinni áfram til 11 annarra sveitarfélaga á landinu og enda í Reykjavík í desember. Í kvöld, þriðjudaginn 20. janúar kl. 20.30, verður dagskrá í …
Viðtalstími sveitarstjórnar 20 janúar
Þriðjudaginn 20. janúar verða fulltrúar úr sveitarstjórn Borgarbyggðar til viðtals í ráðhúsinu að Borgarbraut 14 í Borgarnesi frá kl. 16,00 til 18,00. Íbúar eru hvattir til að nota þetta tækifæri til að ræða málin við sveitarstjórn. Heitt á könnunni.