Uppbyggingarsjóður er opinn fyrir umsóknir

Uppbyggingarsjóður Vesturlands er nú opinn fyrir umsóknir. Sjóðurinn styður fjölbreytt verkefni á sviði menningar, atvinnuþróunar og nýsköpunar auk þess að veita stofn- og rekstrarstyrki á sviði menningarmála á Vesturlandi. Sjóðurinn er samkeppnissjóður og eru umsóknir metnar út frá þeim markmiðum og áherslum sem koma fram í Sóknaráætlun Vesturlands. Umsóknarfrestur er til 21. október kl. 14:00 og er sótt um í …

Íþróttavika Evrópu „Beactive“ í Borgarbyggð

Dagana 23.-30. september stendur yfir Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport), árlegt hvatningarverkefni sem miðar að því að efla hreyfingu og heilbrigðan lífsstíl meðal fólks á öllum aldri. Borgarbyggð tekur þátt í verkefninu í samstarfi við UMSB og fjölmargir viðburðir verða í boði vikuna. Í vikunni gefst íbúum kostur á að kynna sér fjölbreytta hreyfingu og íþróttastarf í sveitarfélaginu. Allir …

Stjórnendur Borgarbyggðar efla færni í viðverustjórnun og leiðtogahlutverki

Sem liður í áframhaldandi þróun leiðtogafærni og markvissari viðverustjórnun hjá Borgarbyggð taka allir stjórnendur sveitarfélagsins þátt í vinnustofu undir leiðsögn Helenu Jónsdóttur, klínískum sálfræðingi og sérfræðingi hjá Mental ráðgjöf. Áhersla vinnustofunnar er meðal annars á samræmdan stjórnendatakt, innleiða regluleg innlit, viðverustjórnun og eftirfylgni. Helena fjallar um hvernig styðja megi starfsfólk við farsæla endurkomu til starfa eftir langvarandi fjarveru og hvernig …

Ungmennaþing Vesturlands haldið í Borgarnesi 25.–27. september

Ungmennaþing Vesturlands verður haldið á Hótel Borgarnesi helgina 25.–27. september 2026. Þingið er samstarfsverkefni sveitarfélaga á Vesturlandi, Ungmennaráðs Vesturlands og Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) og er fjármagnað af Sóknaráætlun Vesturlands. Markmið þingsins er að skapa vettvang þar sem ungt fólk af öllu Vesturlandi getur komið saman, kynnst öðrum ungmennum og tekið þátt í samtali um málefni sem snerta ungt …

Vel heppnuð minningardagskrá Pourquoi Pas?

Minningardagskrá í tilefni þess að 90 ár voru liðin frá hinu hörmulega strandi Pourquoi Pas? fór fram í gær og tókst afar vel. Mikill fjöldi fólks kom saman í Straumfirði, Safnahúsi Borgarfjarðar, Lyngbrekku og á Sögulofti Landnámsseturs Íslands til að minnast skipsins, áhafnarinnar og þeirra sem tengdust þessum örlagaríka atburði. Dagskráin var unnin í samstarfi Borgarbyggðar, Franska sendiráðsins á Íslandi, landeigenda …

Nýr skipulagsfulltrúi

Ásgerður Hafdís Hafsteinsdóttir hefur verið ráðin í starf skipulagsfulltrúa Borgarbyggðar. Ásgerður er menntaður byggingarfræðingur frá Horsens í Danmörku og er að ljúka meistaragráðu í skipulagsfræði frá landbúnaðarháskóla Íslands.  Ásgerður er með góða reynslu af störfum tengdum skipulagsmálum og opinberri stjórnsýslu. Hún hefur tekið þátt í og átt frumkvæði að innleiðingu verkefna tengt skipulagsmálum. Hún hefur t.a.m komið að endurskoðun aðalskipulags, …

Pourquoi Pas? 90 ára ártíð

Í september eru liðin 90 ár frá því franska rannsóknarskipið Pourquoi Pas? fórst við Mýrar árið 1936. Strandið markaði djúp spor í samfélagið á Mýrum. Af því tilefni verður efnt til minningardagskrár miðvikudaginn 16. september. Þar verður sagan rifjuð upp og minning skipsins, áhafnar þess og Íslandsvinarins Jean-Baptiste Charcot höfð í heiðri. Um leið og sjónum verður beint að tengslum …

4. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar

4. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar  fer fram í fundarsalnum Borg í ráðhúsi Borgarbyggðar, Digranesgötu 2,  fimmtudaginn, 10. september nk. og hefst kl. 16:00. Hér má sjá dagskrá fundarins: 4. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar  Streymi frá fundinum má finna hér. Fundargerð 4. fundar Sveitarstjórnar Borgaryggðar

Barnapakki Borgarbyggðar og Öldunnar

Kæru foreldrar/forráðafólk nýfæddra barna Barnapakki Borgarbyggðar og Öldunnar er lítið framlag sveitarfélagsins og samstarfsaðila til að létta undir með ykkur á þessum tímamótum. Barnapakkanum fylgja hamingjuóskir og vonir um bjarta framtíð. Eftirtaldir aðilar hafa tekið höndum saman um Barnapakka Borgarbyggðar en hann gildir sem 10.000 kr. inneign hjá eftirtöldum þjónustuaðilum: Kaupfélag Borgfirðinga Hár center Fok Hársnyrting Dagnýjar Bara Bistro Gunnhildur …

Menningarsjóður Borgarbyggðar auglýsir eftir umsóknum

Menningarsjóður Borgarbyggðar auglýsir nú eftir umsóknum um styrki. Markmið sjóðsins er að efla og styðja við menningarlíf í Borgarbyggð, með sérstakri áherslu á grasrót og frumkvæði í menningu. Með umsókn skal fylgja greinargerð um verkefnið ásamt sundurliðaðri kostnaðaráætlun. Styrkþegar úr fyrri úthlutunum eru minntir á að skila inn skýrslu um framgang og lok verkefna áður en sótt er um á …