Uppfært: Skólahald fellur niður í uppsveitum vegna veðurs

mars 14, 2022
Featured image for “Uppfært: Skólahald fellur niður í uppsveitum vegna veðurs”

Í morgun var tekin ákvörðun um að fella niður skólahald í uppsveitum Borgarbyggðar vegna óveðurs.

Fyrirkomulagið á skólahaldi í dag er svohljóðandi:

Grunnskóli Borgarfjarðar

  • Skólahald fellur niður á Varmalandi.
  • Skólahald fellur niður á Kleppjárnsreykjum.
  • Skólahald fellur niður á Hvanneyri.

Leikskólinn Hnoðraból

  • Skólahald fellur niður.

Frístund á Hvanneyri

  • Starfsemi fellur niður.

Grunnskólinn í Borgarnesi

  • Skólahald með hefðbundnum hætti en ekki verður innanbæjarakstur seinni partinn.

Frístund í Borgarnesi

  • Starfsemi með hefðbundnum hætti.

Tónlistarskóli Borgarfjarðar

  • Skólahald fellur niður

Íbúar eru beðnir um að sýna aðgát og fara varlega.


Share: