![Featured image for “Vörðum leiðina saman: Samráðsfundur með íbúum Vesturlands um samgöngur, sveitarstjórnarmál og húsnæðis- og skipulagsmál”](https://dev.borgarbyggd.is/wp-content/uploads/2023/09/vordum-leidina-saman.png)
Í október býður innviðaráðuneytið, í samvinnu við landshlutasamtök sveitarfélaga, íbúum í öllum landshlutum til opins samráðs á fjarfundum í október undir yfirskriftinni Vörðum leiðina saman. Fundur fyrir íbúa Vesturlands verður haldinn miðvikudaginn 26. október kl. 15-17.
Tilgangur samráðsfundanna er að gefa íbúum og sveitarstjórnarfólki um land allt tækifæri til að hafa áhrif á stefnumótun í nokkrum helstu málaflokkum ráðuneytisins. Á fjarfundunum verður kastljósinu beint að framtíðaráskorunum í málaflokkunum. Meginviðfangsefni fundanna verða umræður um stefnumótun í samgöngum, sveitarstjórnarmálum og húsnæðis- og skipulagsmálum. Einnig verður fjallað um nýsamþykkta byggðaáætlun.
Við hvetjum íbúa til að taka þátt í fjarfundinum sem haldinn er í gegnum fjarfundarbúnaðinn Teams. Hægt er að skrá sig á vef Stjórnarráðsins. Þátttakendur fá boð í tölvupósti til að tengja sig á fundina. Skráningu lýkur daginn fyrir fundinn, þriðjudaginn 25. október.
Fundardagar:
- október – Höfuðborgarsvæðið
- október – Suðurland
- október – Austurland
- október – Norðurland eystra
- október – Norðurland vestra
- október – Vestfirðir
- október – Vesturland
- október – Suðurnes