Úthlutun styrkja úr Menningarsjóði Borgarbyggðar

janúar 13, 2005
Stjórn Menningarsjóðs Borgarbyggðar auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Sjóðurinn hefur það hlutverk að styrkja menningarmál í Borgarbyggð.
 
Æskilegt er að með umsókninni fylgi bókhaldsuppgjör síðasta árs eða starfsárs, ef það á við, og áætlun um nýtingu styrksins ásamt greinar­gerð. Að loknu starfsári afhendist sjóðsstjórn greinargerð um nýtingu styrksins.
Umsóknir skulu berast formanni menningarmálanefndar, Jónínu Ernu Arnardóttur, Borgarbraut 11, 310 Borgarnesi, í síðasta lagi 20. febrúar 2005.
Ath! Ekki verður tekið við umsóknum í tölvupósti.

Share: