Upplýsingar varðandi hóptíma í sal og líkamsræktarstöðinni

janúar 20, 2021
Featured image for “Upplýsingar varðandi hóptíma í sal og líkamsræktarstöðinni”

Ákveðið hefur verið rýmka reglur sem gilda fyrir hóptíma í sal. Iðkendur sem skrá sig í hóptíma skuldbinda sig ekki til þess að mæta samfellt í fimm vikur. Nóg er að skrá sig einn tíma í einu en mikilvægt er að skrá sig. 

Auk þess er vakin athygli á því að einkaþjálfarar og viðurkenndir íþróttakennarar mega bóka tíma í líkamsræktarstöðinni. Um er að ræða eina klukkustund og þarf hópurinn ásamt ábyrgðaraðila að framfylgja sóttvarnarreglum sem er í gildi hvað varðar fjöldatakmarkanir og skráningarskyldu. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður Íþróttamiðstöðva í síma 433-7140.

Borið hefur á því að viðskiptavinir Íþróttamiðstöðvarinnar séu ekki að virða sóttvarnarreglur. Vakin er athygli á því að sóttvarnarreglur eru lögbundnar og brot á þeim er brot á lögum. Brot á sóttvarnarreglum felur í sér tafarlausan brottrekstur úr Íþróttamiðstöðinni.

  • Allir þátttakendur þurfa að skrá sig fyrirfram í hóptíma til að auðvelda smitrakningu.
  • Hámarksfjöldi í hópæfingasal er 20 einstaklingar og skal sá hópur hafa aðgang að salernum sem ekki eru samnýtt af öðrum, á meðan einstaklingarnir dvelja á staðnum.
  • Hver þátttakandi í hóptíma hafi æfingasvæði að lágmarki 4 fermetra (2m í hverja átt). Hver þátttakandi heldur sig innan síns svæðis út alla æfinguna.
  • Engum búnaði má deila milli einstaklinga innan hvers tíma.
  • Tryggja skal góða loftræstingu í salnum (með loftræstikerfi og að opna glugga).
  • Hlé skal vera á milli tíma til loftræstingar og sótthreinsunar búnaðar og snertiflata og til þess að hópar mætist ekki í rýmum hússins t.d. á göngum og í anddyri.

Þátttakendur, þjálfarar og rekstraraðilar ber að gæta persónulegra sóttvarna

  • Allir eiga að vera með hreinar hendur og spritta þær við komu á staðinn, eftir snertingu við mengað svæði og eftir að æfingum er lokið.
  • Í sameiginlegum rýmum skal tryggja 2ja metra fjarlægð milli einstaklinga en ef því verður ekki við komið skulu þeir sem eru á svæðinu nota andlitsgrímur.
  • Hver tími verði að hámarki 60 mín. og viðvera hvers iðkanda í húsi verði því aldrei lengri en 60 mín.
  • Búningsklefar skulu vera lokaðir og þátttakendur komi tilbúnir til æfinga í stöðina.

Hreinsun og sótthreinsun búnaðar

  • Tryggja þarf greiðan aðgang þátttakenda að handspritti og sótthreinsiklútum.
  • Eftir æfingu sótthreinsi allir þann búnað sem þeir notuðu.
  • Rekstraraðilar heilsu- og líkamsræktarstöðva bera ábyrgð á að allur búnaður sé sótthreinsaður milli hópa.
  • Starfsmaður sjái um að þrífa og sótthreinsa snertifleti í æfingasal, salerni, vaska og aðra snertifleti.
  • Upplýsingaskilti um smitvarnir eiga að vera sýnileg öllum.

Lesa má nánar um sóttvarnarreglur hér.

 

 

 


Share: