Á sauðamessu í Hjálmakletti s.l. laugardag voru afhentar umhverfisviðurkenningar Borgarbyggðar en þær eru fjórar.
- Snyrtilegasta bændabýlið
Sámsstaðir í Hvítársíðu
Fjárbú, í eigu Ólafs Guðmundssonar og Þuríðar Guðmundsdóttur, þar sem öll umhirða er til fyrirmyndar. Snyrtimennska í hávegum höfð varðandi heyskap, frágang vinnuvéla og tækja úti við, rúllustæður og girðingar. Húsum vel við haldið.
- Snyrtilegasta lóð við íbúðarhús
Berugata 5 – Ingibjörg Jónsdóttir og Anna E. Rafnsdóttir
Viðurkenningin er veitt fyrir garðrækt. Garðurinn er í gömlum garðastíl og þar er að finna fjölbreyttan gróðu. Mikil natni og alúð er lögð í ræktunina og blómin ræktuð frá grunni. Mikil og sífelld vinna er lögð í umhirðu garðsins.
- Snyrtilegasta lóð við atvinnuhúsnæði
Grenigerði
Snyrtileg aðkoma og gróskumikið ræktunarstarf. Rita og Páll í Grenigerði hafa lagt mikla vinnu í umfangsmikla trjárækt, með virðingu og umhyggju fyrir náttúrunni í kring að leiðarljósi. Þá hafa þau gefið mikið af sér til samfélagsins; tekið á móti hópum og gefið trjáplöntur til skóla og annarra stofnana. Heimsókn í Grenigerði er heimsókn í ævintýraland.
- Sérstök viðurkenning umhverfis,-skipulags- og landbúnaðarnefndar vegna umhverfismála
Björk Jóhannsdóttir hlýtur viðurkenningu fyrir frumkvöðlastarf, elju og einstaklingsframtak. Björk var aðalhugmyndasmiður að verkefninu „Egla tekur til hendinni“ og burðarplastpokalaus Borgarbyggð auk þess sem hún virkjaði hóp sjálfboðaliða í ruslatínslu í nærsamfélaginu undir nafninu Plokkhópur Eglu.