Tillaga að deiliskipulagi fyrir verslunar- og þjónustusvæði í Húsafelli III.

desember 20, 2013
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti 12. desember 2013 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir verslunar- og þjónustusvæði í Húsafelli skv. 1. mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagssvæðið tekur til 4,1 ha svæðis í Húsafelli III í Borgarbyggð. Deililskipulagstillagan felur í sér verslunar- og þjónustusvæði þar sem skilgreindar eru 3 lóðir; fyrir verslun- og þjónustu, hótel og sundlaugarsvæði. Á lóð hótels verður byggingarreitur með heimild til að byggja 38 herbergja hótel allt að 1300 m2 og á lóð sundlaugarsvæðis verður byggingarreitur með leyfi til að stækka núverandi sundlaugarhús um allt að 150 m2.
Tillagan liggur frammi í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi frá 20. desember 2013 til 31. janúar 2014 og á heimasíðu Borgarbyggðar www.borgarbyggd.is.
Athugasemdir eða ábendingar skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa í síðasta lagi 31. janúar 2014 annað hvort í Ráðhús Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi eða á netfangið lulu@borgarbyggd.is
Til að sjá deiliskipulagstillöguna smellið hér
Lulu Munk Andersen
skipulags- og byggingarfulltrúi
 

Share: