Þróunarsjóðurinn Ísland allt árið – styrkumsóknir

september 18, 2012
Atvinnuvegaráðuneytið og Landsbankinn auglýsa eftir umsóknum um styrki í Þróunarsjóðinn, Ísland allt árið. Markmið sjóðsins að lengja ferðamannatímabilið á Íslandi, með því að styrkja þróun verkefna sem auka framboð utan háannatíma ferðaþjónustu og auka þannig arðsemi fyrirtækja í geiranum.
Lögð er áhersla á að styðja við samstarfsverkefni fyrirtækja sem lengt geta ferðamannatímann á tilteknum svæðum en einnig koma til greina afbragðsverkefni einstakra fyrirtækja.
Í umsókn þurfa að koma fram skýrar hugmyndir um hvernig verkefni er ætlað að skila í senn aukinni atvinnu og varanlegum verðmætum. Umsóknarfrestur er til 23. október 2012 og er gert ráð fyrir að styrkir verði veittir í desember 2012.
Nánari upplýsingar um þróunarsjóðinn “Ísland allt árið”
 

Share: