Sumarstörf í áhaldahúsi

mars 18, 2021
Featured image for “Sumarstörf í áhaldahúsi”

Áhaldahús Borgarbyggðar leitar af þremur starfsmönnum við sumarstörf.

Erum við að leita að þér?

HELSTU VERKEFNI OG ÁBYRGÐ

  • Starfið felst í vinnu undir stjórn verkstjóra áhaldahússins við slátt, umhirðuverkefni á opnum svæðum, almennt viðhald og ýmsar verklegar framkvæmdir á vegum áhaldahúss.

MENNTUN OG HÆFNISKRÖFUR

  • Þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Skilyrði er að starfsmaður hafi náð 18 ára aldri
  • Skilyrði er að starfsmaður hafi ökuréttindi
  • Vinnuvélaréttindi eru æskileg en ekki skilyrði
  • Jákvæðni, frumkvæði, áhugi  og metnaður

FREKARI UPPLÝSINGAR UM STARFIÐ

Vinnutími: dagvinna

Starfshlutfall: 100%

Starfstímabil: frá 1. maí til 31. ágúst 2021 eða eftir samkomulagi.

Starfssvið: Stjórnsýslu- og þjónustusvið Borgarbyggðar

Umsóknarfrestur er til og með: 1. apríl 2021.

Umsókn skal senda á netfangið: amundi@borgarbyggd.is

Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum ef við á. Umsókn fylgi einnig kynningarbréf.  Öllum umsóknum verður svarað.

Áhugasamir einstaklingar, án tillit til kyns eru hvattir til að sækja um. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga  við viðkomandi stéttarfélag.

Nánari upplýsingar veitir Ámundi Sigurðsson verkstjóri í síma 892-5678.

 


Share: