Sumarlesturinn kynntur í Safnahúsi

maí 10, 2011
Þessar vikurnar er mikið um að vera á héraðsbókasafninu en þar standa yfir kynningar á sumarlestrinum sem verður í ár frá 10. júní til 10. ágúst. Kennarar í Grunnskólanum í Borgarnesi eru duglegir að koma með nemendur sína í kynningu á verkefninu hjá Sævari Inga Jónssyni héraðsbókaverði og eru nemendurnir þaðan alls um hundrað talsins.
Í gærmorgun komu um 30 krakkar úr 1. bekk ásamt kennurum sínum og aðstoðarfólki og þá var þessi mynd tekin. Þess má geta að dreifbýlisskólarnir í héraðinu fengu einnig boð um kynningu á sumarlestrinum og nýta sér það eftir föngum.
Mikil þátttaka hefur verið í sumarlestrinum, en þetta er í fjórða sinn sem héraðsbókasafnið stendur fyrir verkefninu. Í fyrra lásu 47 krakkar 305 bækur sem var frábær frammistaða og met þátttaka.
 
Tilgangurinn með sumarlestrinum er að hvetja krakka til lesturs. Þegar verkefninu lýkur í ágúst er haldin uppskeruhátíð þar sem krakkarnir koma saman og fagna góðum afrekum. Þá er farið í leiki og ýmislegt annað sér til gamans gert.
 
Ljósmynd með frétt: Hólmfríður Ólafsdóttir.
 

Share: