Snorrastofa – erindi um klaustrið í Bæ

janúar 31, 2011
Sr. Flóki Kristinsson sóknarprestur á Hvanneyri flytur erindið Klaustrið í Bæ á árunum 1030 – 1049 í Snorrastofu, þriðjudaginn 1. febrúar kl. 20.30. Hugleiðingar um Hróðólf ábóta og hlutverk klaustursins.
Sr. Flóki hefur sýnt klaustrinu í Bæ áhuga en mjög lítið er vitað um starfsemi þess og heimildir fáar. Þó má nokkuð ráða í starfsemi þess af almennum heimildum um 11. öldina. Í erindi sínu reynir hann að varpa ljósi á starfsemi klaustursins og hvernig til þess var stofnað.

Share: