Sagnaritun 2009 – Safnahús Borgarfjarðar

mars 30, 2009
 
Safnahús Borgarfjarðar hefur sett í gang átak til að fá íbúa í sveitarfélaginu til að skrifa niður ýmis minnisatriði og frásagnir og fela skjalasafninu til varðveislu. Sérstaklega er í þessu tilliti höfðað til eldra fólks sem þekkir söguna betur en þeir sem yngri eru. Þetta er ekki síst gert með Gullastokkinn að fyrirmynd, en það er farsælt verkefni sem hefur lengi verið í gangi hjá félagi eldri borgara í Borgarfjarðardölum, þar sem fólk hefur tekið saman ýmsan fróðleik um menn og málefni og miðlað til annarra í félaginu auk þess sem söfnin fá að njóta góðs af.
Fulltrúar frá Safnahúsinu hafa undanfarið mætt á félagsfundi hjá eldri borgurum til að kynna þetta þarfa málefni. Þar hefur þeirri beiðni verið beint til fólks að skrifa niður eða láta skrá eftir sér það sem það man af fróðleik um liðna tíma og fela skjalasafninu afrit til varðveislu. Ennfremur verður átakið kynnt til annarra íbúa í sveitarfélaginu og til brotttfluttra Borgfirðinga með ýmsum hætti. Það skal tekið fram sé fólk annars staðar að á landinu og vilji skrifa niður fróðleik þaðan er slíkt einnig mjög vel þegið. Allar frekari upplýsingar um þetta eru veittar í Safnahúsi (opið frá 13 -18 alla virka daga) í síma 430 7200 eða safnahus@safnahus.is.
 
 

Share: