Ókeypis blóðfitu- og blóðþrýstingsmæling í Borgarnesi

febrúar 19, 2008
Laugardaginn 23 febrúar n.k., kl. 10 – 14 verður boðin ókeypis blóðfitu- og blóðþrýstingsmæling í Borgarnesi. Mælingin fer fram í Heilsugæslustöðini í Borgarnesi. Mælingarnar eru skipulagðar af HjartaHeill Vesturlandi og HjartaHeill Landssamtökum hjartasjúklinga í samvinnu við heilsugæsluna í Borgarnesi og lyfjafyrirtækið AstraZeneca.
Fjölmargar rannsóknir hafa á undanförnum árum sýnt fram á hve nauðsynlegt er að lækka blóðfituna til að koma í veg fyrir hjarta- og æðasjúkdóma. Lækkun blóðfitu (kólesteróls) er einn mikilvægasti hlekkurinn í forvörnum á því sviði. Með hollu mataræði og hreyfingu má ná ákveðnum árangri, en oft þarf að grípa til lyfjameðferðar til að lækka blóðfitu.
Þekkir þú blóðfitugildið þitt? Ef ekki er kjörið tækifæri að líta við á Heilsugæslustöðini í Borgarnesi laugardaginn 23 febrúar. Heilbrigðisstarfsfólk annast mælingarnar og veitir upplýsingar og ráðleggingar. Kl. 10 – 14 . Þeir sem aldrei hafa farið í blóðfitumælingu eru sérstaklega hvattir til að mæta. Lyfjafræðingur lyfjafyrirtækisins AstraZeneca verður á staðnum og mun fræða þá sem þess óska um lyf og lyfjagjafir.
 
(Fréttatilkynning,)
 

Share: