![Featured image for “Öðruvísi öskudagur í ár”](https://dev.borgarbyggd.is/wp-content/uploads/2023/09/147849533_4081114145253671_3235329086644724057_o.jpg)
Sóttvarnayfirvöld hafa gefið út leiðbeiningar varðandi heimsóknir barna í stofnanir og fyrirtæki á öskudaginn sem er miðvikudaginn 17. febrúar nk.
Hugmyndir á farsóttartímum á öðruvísi öskudegi:
Gerum okkur dagamun í nærumhverfinu
- Höldum upp á daginn á heimavelli, í skólanum, frístundaheimilinu eða félagsmiðstöðinni.
Mætum í búningum
- Brjótum upp á hversdagsleikann með því að mæta öll í búningum. Ungir sem aldnir.
Endurvekjum gamlar hefðir
- Nú er tækifæri að endurvekja gamlar öskudagshefðir eins og að búa til öskudagspoka og slá köttinn úr tunnunni. Með sóttvarnir í huga að sjálfsögðu.
Syngjum fyrir sælgæti
- Ef hefð er fyrir því að ganga á milli húsa eða fyrirtækja í hverfinu væri upplagt að foreldrafélög tækju upp á sína arma að halda utan um hvar sé hægt að koma og syngja fyrir nammi. Athugið að gæta fyllstu sóttvarna og gefið aðeins sérinnpakkað sælgæti.