Menningarsjóður Borgarbyggðar – styrkir

febrúar 9, 2012
Stjórn Menningarsjóðs Borgarbyggðar auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum.
Tilgangur hans er að efla menningu í Borgarbyggð og er sérstök rækt lögð við grasrót í menningarlífi. Lögð er áhersla á að styrkja einstaklinga og félagasamtök. Styrkir eru verkefnatengdir.
Umsókninni fylgi sundurliðuð kostnaðarætlun fyrir verkefnið ásamt greinargerð. Fyrir árslok afhendist sjóðsstjórn skýrsla um nýtingu styrksins.
Umsóknir skulu berast til Emblu Guðmundsdóttur þjónustufulltrúa, skrifstofu Borgarbyggðar í Reykholti, 320 Reykholt, í síðasta lagi fimmtudaginn 1. mars 2012.
Umsóknareyðublað má finna á heimasíðu Borgarbyggðar:
Ef umsækjandi óskar eftir að fá gögn endursend skal hann taka það sérstaklega fram.
Stjórn Menningarsjóðs Borgarbyggðar
 
 

Share: