Matjurtagarðar til leigu 2012

maí 7, 2012
Líkt og undanfarin ár er íbúum Borgarbyggðar gefinn kostur á að leigja sér matjurtagarða til ræktunar í sumar. Garðarnir eru í landi Gróðrarstövarinnar Gleymérei í við Borgarnes og verða tilbúnir til afhendingar nú í maíbyrjun. Tvær stærðir eru í boði, 15 m2 á kr. 3.950 og 30 m2 á kr. 5.600. Áhugasamir eru beðnir að hafa samband við Björgu Gunnarsdóttur umhverfis- og landbúnaðarfulltrúa Borgarbyggðar í síma 433 7100 eða á netfangið bjorg@borgarbyggd.is Sjá auglýsingu hér.
 

Share: