Mæðgur sýna í Safnahúsi

nóvember 29, 2012
Laugardaginn 1. desember kl. 13.00 verður opnuð myndlistarsýning í Safnahúsi Borgarfjarðar þar sem sýndar verða myndir eftir mæðgurnar Björk Jóhannsdóttur og Jóhönnu Stefánsdóttur. Björk sýnir ljóðamyndir, vatnslitamyndir og akrýlmyndir, en Jóhanna klippimyndir byggðar á gyðjufræðum hinna ýmsu trúarbragða.
Sýningin er í Hallsteinssal á efri hæð Safnahúss og verður opin á virkum dögum kl. 13.00-18.00 og einnig á laugardögum kl. 13.00-16.00 og þá verða mæðgurnar á staðnum. Lokað á sunnudögum. Sýningin verður opin fram til 22. desember.
 

Share: