Lóa, nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina – frestur framlengdur til 22. mars

mars 16, 2021
Featured image for “Lóa, nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina – frestur framlengdur til 22. mars”

Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra auglýsir eftir umsóknum um Lóu – nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðina. 

Hlutverk styrkjanna, sem nú verða veittir í fyrsta sinn, er að styðja við nýsköpun, eflingu atvinnulífs og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni, á forsendum svæðanna sjálfra. Lóa styður við nýsköpunarstefnu og er liður í breytingum á opinberu stuðningsumhverfi nýsköpunar vegna fyrirhugaðar niðurlagningar Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.

Umsóknarfrestur er til 22. mars 2021.


Umsóknum er skilað rafrænt eyðublaðavef stjórnarráðsins

Nánar um Lóu

Atvinnuráðgjöf SSV getur veitt aðstoð við gerð styrkumsókna


Share: