Líkamsræktarstöðin opnar á ný

febrúar 8, 2021
Featured image for “Líkamsræktarstöðin opnar á ný”

Frá og með deginum í dag, 8. febrúar mun líkamsræktarstöðin opna að nýju að uppfylltum ítarlegum skilyrðum.

Eftirfarandi leiðbeiningar er unnar úr minnisblaði sóttvarnalæknis.

  1. Hámarksfjöldi í sal eru 20 manns hverju sinni.
  2. Iðkendur eru beðnir að skrá sig í afgreiðslu og sækja sér teygju.
  3. Iðkendur eru beðnir að útskrá sig í afgreiðslu og skila teygjunni.
  4. Við komu í hús skal sótthreinsa hendur og bera grímu þar til æfing hefst og eftir að henni lýkur.
  5. Iðkendur skulu sótthreins sinn búnað eftir notkun.
  6. Hver tími er að hámarki 60 mínútur og viðvera hvers iðkanda í húsi er aldrei lengri en 90 mínútur.
  7. Einungis er hleypt í búningsaðstöðu ef fjöldatakmörkun leyfir.
  8. Iðkendur skulu virða sóttvarnarhólfin í Íþróttamiðstöðinni.

Brot á sóttvarnarreglum felur í sér tafarlausan brottrekstur úr Íþróttamiðstöðinni.

 


Share: