LBHÍ – Út með ágrip

mars 9, 2009
Föstudaginn 13. mars verður efnt til málþings á Hvanneyri um leiðir til þess að koma í veg fyrir ágrip og aðra áverka í tengslum við sýningar hrossa. Málþingið hefst kl. 17 og stendur til kl. 20. Það verður haldið í Árssal í Ásgarði (Nýi skóli). Þeir sem vilja sækja málþingið geta sent tölvupóst með á netfangið endurmenntun@lbhi.is. Þar þarf að koma fram nafn og að um sé að ræða umrætt málþing. Einnig getur fólk hringt í síma 433 5000 og látið skrá sig. Síðasti skráningadagur er miðvikudagurinn 11. mars. Ekkert skráningargjald.

Frummælendur: Eyjólfur Ísólfsson, tamningameistari FT og yfirreiðkennari Hólaskóla, Friðrik Már Sigurðsson, kennari og kynbótadómari, Pétur Halldórsson, ráðunautur og sýningastjóri, Jakob S. Sigurðsson, reiðkennari og þjálfari, Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir hrossasjúkdóma og Sigurður Torfi Sigurðsson, járningameistari. Guðlaugur Antonsson, hrossaræktarráðunautur flytur inngangsávarp. Fundarstjóri er Dr. Ágúst Sigurðsson rektor LBHÍ.

Gert verður matarhlé og verður hægt að kaupa mat á staðnum fyrir kr. 1.500. Málþingið er öllum opið og eru hestamenn hvaðanæva að hvattir til að fjölmenna!

Aðilar sem standa að ráðstefnunni eru: Félag hrossabænda. Félag tamningamanna, Járningamannafélag Íslands, Hólaskóli, Háskólinn á Hólum, Landbúnaðarháskóli Íslands, Landsamband hestamannafélaga og Matvælastofnun.

Share: