Laust starf innheimtufulltrúa hjá Borgarbyggð

mars 10, 2015
Borgarbyggð auglýsir laust til umsóknar starf innheimtufulltrúa. Starfshlutfall er 100% og brýnt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Verkefni og ábyrgðarsvið:
Ábyrgð á útgáfu og útsendingu reikninga
Umsjón með innheimtuaðgerðum og útsendingu innheimtubréfa
Álagning fasteignagjalda og umsjón húsaleigubóta
Móttaka og símsvörun hluta dags
Almenn skrifstofustörf og önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur:
Stúdentspróf
Reynsla sem nýtist í starfi
Góð tölvukunnátta, þekking á Navision æskileg
Sjálfstæð, skipulögð og öguð vinnubrögð
Rík þjónustulund og lipurð í samskiptum
Sterk íslenskukunnátta í ræðu og riti
Upplýsingar veitir Aldís Arna Tryggvadóttir í síma 433 7100.
 
Í samræmi við jafnréttisstefnu Borgarbyggðar hvetur sveitarfélagið karla jafnt sem konur til þess að sækja um starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 23. mars. Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsóknum á netfangið aldisarna@borgarbyggd.is. Með umsókn þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni í starfið.
 

Share: