Laust starf forstöðumanns í Frístund Borgarnesi

desember 18, 2020
Featured image for “Laust starf forstöðumanns í Frístund Borgarnesi”

Borgarbyggð óskar eftir einstaklingi í spennandi starf í Frístund Borgarnesi.
Um er að ræða 100% afleysingarstarf í um 1 ár sem hefst 4. janúar 2021.

Helstu verkefni eru daglegur rekstur, skipulagning og umsjón með frístundarstarfi fyrir 1. – 4. bekk í Borgarnesi.  Utanumhald skráninga og samskipti við foreldra. Einnig skipulagning og utanumhald með Sumarfjöri.

Menntunar og hæfniskröfur:

Menntun og/eða reynsla á sviði uppeldis-, félags- eða tómstundamála er kostur.

Frumkvæði,skipulagshæfileikar, jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum.

Umsókn skal skilað ásamt ferilskrá og kynningarbréfi á netfangið david@umsb.is
Umsóknarfrestur er til og með 27. desember 2020.

Nánari upplýsingar veitir Davíð Guðmundsson tómstundafulltrúi UMSB – david@umsb.is 


Share: