Laus störf fyrir háskólanema

maí 13, 2014
Borgarbyggð auglýsir laus til umsóknar tvo störf sem ætluð eru háskólanemum. Skilyrði er að umsækjendur eigi lögheimili í Borgarbyggð og séu á milli anna í háskólanámi.
 
Sundlaugarvarsla í Hreppslaug
(í samstarfi við Umf. Íslending)
Ungmennafélagið Íslendingur leitar að einstaklingi til starfa sem sundlaugarvörður við Hreppslaug í Skorradal. Um er að ræða 100 % starf á tímabilinu 6. júní – 10. ágúst 2014.
Vinnutími er fimmtudagur – föstudagur kl. 18.30- 23.00 og laugardagur – sunnudagur kl. 12.30-22.00.
Helstu verkefni eru öryggisgæsla, afgreiðsla, baðvarsla og ræstingar.
Hæfniskröfur: Leitað er að einstaklingi sem er þjónustulundaður og reglusamur og hefur góð tök á íslensku og ensku. Hann þarf að hafa lokið námskeiði í skyndihjálp og hafa staðist sundpróf.
Nánari upplýsingar um þetta starf veitir Ulla R. Pedersen, formaður Ungmennafélagsins Íslendings í síma 865-0148 eða ullaogragnar@gmail.com
Starf á golfvelli Glanna í Norðurárdal
(í samstarfi við Golfklúbbinn Glanna)
Starfsmaður óskast til almennra starfa á Golfvellinum Glanna. Um er að ræða umhirðu, vökvun, slátt og önnur störf sem upp koma.
Vinnutími er frá kl. 8 – 16.
Umsækjandi þarf að vera vinnusamur og stundvís og eiga gott með að vinna með öðrum. Nánari upplýsingar um starfið gefur Kolbeinn í gegn um netfangið kolbeinnp@gmail.com
Áhugasamir háskólanemar eru beðnir um að senda umsóknir um störfin, ásamt gögnum sem styðja umsóknina, á netfangið kristjangisla@borgarbyggð.is fyrir 21. maí n.k. Öllum umsóknum verður svarað.
Sveitarstjóri
 

Share: