Lausar lóðir í Borgarbyggð – Umsóknarfrestur til 7. janúar 2008

janúar 2, 2008
Starfsmenn framkvæmdasviðs Borgarbyggðar vilja minna á að nú stendur yfir úthlutun á íbúðar- og iðnaðarlóðum í Borgarnesi, Hvanneyri og Bæjarsveit.
Finna má uppdrætti sem sýna staðsetningu lóðanna hér á heimasíðu Borgarbyggðar til hliðar undir liðnum „lausar lóðir“. Umsóknarfrestur er til og með 7. janúar.
Nánari upplýsingar gefur Sigurjón Einarsson hjá framkvæmdasviði í síma 433-7100.
Mynd með frétt: Magnús Guðjónsson

Share: