Laus störf í frístund á Hvanneyri og í Borgarnesi

ágúst 6, 2020
Featured image for “Laus störf í frístund á Hvanneyri og í Borgarnesi”

Óskað er eftir frístundaleiðbeinendum í frístund á Hvanneyri og í Borgarnesi

Markhópur frístundar eru börn á aldrinum 6-9 ára.

  • Á Hvanneyri er í boði hlutastarf þar sem unnið er mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga frá 13:00-16:00, fimmtudaga frá 13:50-16:00 og föstudaga frá 12:30-16:00.
  • Í  Borgarnesi er í boði hlutastarf þar sem unnið er alla virka daga frá kl. 12:45 – 16:00.

Unnið er samkvæmt gæðaviðmiðum í frístundarstarfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Leiðbeina börnum í leik og starfi.
  • Skipulagning á faglegu frístundarstarfi
  • Samvinna við börn og starfsfólk
  • Samskipti og samstarf við foreldra, starfsfólk skóla og aðra sem koma að starfi frístundar í Borgarnesi og á Hvanneyri.

Hæfniskröfur

  • Áhugi á að vinna með börnum
  • Frumkvæði, gleði og sjálfstæði.
  • Færni í mannlegum samskiptum.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Borgarbyggðar.

Umsóknarfrestur er til 16. ágúst n.k.

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf 24. ágúst n.k.

Nánari upplýsingar veitir Davíð Guðmundsson, tómstundafulltrúi á netfangið david@umsb.is. Umsóknir með ferilskrá, meðmæli og aðrar upplýsingar skulu einnig berast á david@umsb.is


Share: