Laus staða sálfræðings

febrúar 28, 2020
Featured image for “Laus staða sálfræðings”

Sálfræðingur óskast til starfa hjá félagsþjónustu Borgarbyggðar í 60- 100% starf.

Störf sálfræðings eru á sviði barnaverndarnefndar og velferðarnefndar. Borgarbyggð þjónustar einnig Dalabyggð og Skorradal um barnavernd, félagsþjónustu og í málefnum fólks með fötlun.

Starfssvið

  • Greining og meðferð barnaverndarmála
  • Einstaklings- og fjölskyldumál fyrir félagsþjónustu, þ.m.t. þjónusta við fatlaða
  • Þverfagleg teymisvinna með stofnunum, s.s. skólum, leikskólum og öðrum þjónustustofnunum vegna málefna einstaklinga og fjölskyldna
  • Annast fræðslu fyrir stofnanir sveitarfélagsins s.s. skóla, leikskóla og aðrar þjónustustofnanir, um barnavernd og aðra faglega þætti er lúta að sviði sálfræðings

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Starfsréttindi sem sálfræðingur
  • Þekking og reynsla á sviði barnaverndar, félagsþjónustu og af vinnu með fólki með fötlun
  • Reynsla af meðferð fjölskyldumála
  • Lipurð í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og sveigjanleiki í starfi
  • Skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
  • Hæfni í þverfaglegu samstarfi

Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðilum berist á netfangið borgarbyggd@borgarbyggd.is

Nánari upplýsingar um starfið veitir Inga Vildís Bjarnadóttir, félagsmálastjóri í síma 433-7100, vildis@borgarbyggd.is.

Umsóknarfrestur er til 15. mars nk.

Launa- og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags við Samband íslenskra sveitarfélaga. Áhugasamir eru hvattir til að sækja um óháð kyni og uppruna.


Share: