Kjördeildir í Borgarbyggð 2010

maí 27, 2010
AUGLÝSING
UM SKIPAN Í KJÖRDEILDIR Í BORGARBYGGÐ
Við sveitarstjórnarkosningar laugardaginn
29. maí 2010
er skipan í kjördeildir í Borgarbyggð sem hér segir:
Borgarneskjördeild í Menntaskólanum í Borgarnesi
Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Langár og Gljúfurár.
Kjörfundur hefst kl. 9.00 og lýkur kl. 22.00
Lindartungukjördeild í félagsheimilinu Lindartungu
Þar kjósa íbúar í fyrrum Kolbeinsstaðahreppi.
Kjörfundur hefst kl. 12.00 og lýkur kl. 20.00
Lyngbrekkukjördeild í félagsheimilinu Lyngbrekku
Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Langár og Hítarár.
Kjörfundur hefst kl. 12.00 og lýkur kl. 20.00
Þinghamarskjördeild í félagsheimilinu Þinghamri, Varmalandi
Þar kjósa íbúar í Stafholtstungum, Norðurárdal, Bifröst og Þverárhlíð.
Kjörfundur hefst kl. 10.00 og lýkur kl. 22.00
Brúaráskjördeild í félagsheimilinu Brúarási
Þar kjósa íbúar Hvítársíðu og Hálsasveitar.
Kjörfundur hefst kl. 10.00 og lýkur kl. 18.00
Kleppjárnsreykjakjördeild í Grunnskóla Borgarfjarðar Kleppjárnsreykjum
Þar kjósa íbúar Hvanneyrar, Andakíls, Bæjarsveitar, Lundarreykjadals,
Flókadals og Reykholtsdals.
Kjörfundur hefst kl. 10.00 og lýkur kl. 22.00
Kjósendur eru hvattir til að athuga í hvaða kjördeild þeir eiga
að kjósa og hafa persónuskilríki með sér á kjörstað.
Á kjördag verður kjörstjórn Borgarbyggðar með aðsetur
í Menntaskólanum í Borgarnesi. Sími hennar er 845-8818
Kjörstjórn Borgarbyggðar
 

Share: