Jólaútvarp Óðals, fm 101,3

desember 9, 2013
Árlegt jólaútvarp félagsmiðstöðvarinnar Óðals og N.F.G.B. verður sent út frá Óðali 9. – 13. desember frá kl. 10.00 – 23.00 alla daga. Eins og undanfarin ár verður fjölbreytt og skemmtileg dagskrá í boði. Fyrir hádegi verður útvarpað áður hljóðrituðum þáttum yngri bekkja grunnskólans en eftir hádegisfréttir verða unglingarnir með sína þætti í beinni útsendingu.
Handritagerð fór fram í skólanum þar sem jólaútvarpið hefur verið tekið sem sérstakt verkefni í íslenskukennslu, metið til einkunnar.
Hápunktur fréttastofunnar verður eins og undanfarin ár: „Bæjarmálin í beinni” föstudaginn 13. des. kl. 13.00.
Von er á góðum gestum í hljóðstofu þar sem málin verða rædd.
Gestir verða úr atvinnulífinu, íþrótta- og menningargeiranum sem og sveitarstjórn og sveitarstjóri.
Dagskrá jólaútvarpsins má nálgast hér.
 

Share: