Jólagjöf til starfsmanna Borgarbyggðar – Gjafabréf

nóvember 25, 2020
Featured image for “Jólagjöf til starfsmanna Borgarbyggðar – Gjafabréf”

Borgarbyggð auglýsir eftir verslunar- og þjónustuaðilum í sveitarfélaginu sem hafa áhuga á að taka á móti gjafabréfum sem eru jólagjöf til starfsmanna sveitarfélagsins. Fyrirkomulagið verður þannig háttað að starfsmenn fá gjafabréf að andvirði 10.000 kr. ásamt upptalningu á fyrirtækjum sem skrá sig í verkefnið. Gjafabréfin virka sem greiðsla á eða upp í kaup á vöru og þjónustu í Borgarbyggð. Viðkomandi fyrirtæki fá síðan upphæðina greidda hjá Borgarbyggð gegn framvísun gjafabréfsins.

Gert er ráð fyrir að hægt verði að nota gjafabréfin frá 3. desember 2020 – 28. febrúar 2021.

Skilyrði fyrir þátttöku verslunar- og þjónustuaðila er að fyrirtækið sé skráð hjá hinu opinbera og sé starfandi í Borgarbyggð.

Um er að ræða ríflega 300 gjafabréf sem þurfa að afhendast í byrjun desember 2020.

Skráningafrestur er til 27. nóvember n.k.

Skráning fer fram á netfanginu maria.neves@borgarbyggd.is og nánari upplýsingar gefur María Neves, samskiptastjóri í síma 433-7100.

 


Share: