Íþróttir og tómstundir í Borgarbyggð

febrúar 8, 2018
Featured image for “Íþróttir og tómstundir  í Borgarbyggð”

Opinn samráðsfundur verður haldinn um íþróttir og tómstundir í Borgarbyggð þriðjudaginn 13. febrúar kl.20:00 í Hjálmakletti

Dagskrá:

Mikilvægi stefnumótunar í íþróttum og tómstundum

Jakob Frímann Þorsteinsson, aðjúnkt í tómstunda- og félagsmálafræði við Háskóla Íslands

Umræður um skipulag íþrótta og tómstunda í Borgarbyggð

Markmið samráðsfundarins er að leita svara við því hvernig staðið verði að fjölbreyttum íþróttum og tómstundum fyrir íbúa Borgarbyggðar

  • Hvað er gott við skipulag íþrótta og tómstunda í Borgarbyggð?
  • Hvað má bæta í skipulagi íþrótta og tómstunda í Borgarbyggð?
  • Hvernig nýtum við sem best öll íþróttamannvirki í Borgarbyggð?
  • Hvað getur þitt félag lagt að mörkum til að auka fjölbreytni í íþróttum og tómstundum fyrir íbúa Borgarbyggðar?

Fjölmennum og höfum áhrif!

 

 Fræðslunefnd Borgarbyggðar

Stjórn UMSB

 


Share: