Innritun í Tónlistarskólann

ágúst 15, 2011
Nemar í fiðluleik
Fimmtudaginn 18. ágúst næstkomandi verður Tónlistarskóli Borgarfjarðar með innritun fyrir nýnema að Borgarbraut 23. Tekið verður á móti innritunum frá kl. 14.00 – 18.00. Einnig hægt að senda tölvupóst á tskb@simnet.is eða hringja í síma 437 2330. Kennsla fer fram í Borgarnesi, á Hvanneyri, á Kleppjárnsreykjum og á Varmalandi.
Í umsókn þarf að koma fram nafn, kennitala, heimilisfang og símanúmer nemanda, hljóðfæri sem óskað er eftir að læra á og svo nafn og kennitala foreldris(greiðanda).
Eldri nemendur eru minntir á að ganga frá staðfestingargjöldum.
Upplýsingar um það nám sem er í boði eru í fréttabréfi Tónlistarskólans sjá hér. Einnig gefur skólastjóri upplýsingar í síma 437 2330 eða 864 0858
 

Share: