Hunda- og kattahreinsun 2018

nóvember 1, 2018
Featured image for “Hunda- og kattahreinsun 2018”

Lögbundin hunda- og kattahreinsun verður í Borgarbyggð á eftirtöldum stöðum.

  • Borgarnesi 12. nóvember í slökkvistöðinni við Sólbakka.
    • Fyrir hunda með skráningarnr. 150- 250 16:30 -17:30.
    • Fyrir hunda með skráningarnr. 251- 435 og 1 – 35 17:30 – 19:00
    • Fyrir ketti 19:15 – 20:15.
  • Bifröst 13. nóvember í kyndistöðinni kl. 16:30 – 18:00.

Gunnar Gauti Gunnarsson annast hreinsunina ofangreinda daga.

  • Borgarnesi 20. nóvember í slökkvistöðinni við Sólbakka kl. 17:00 – 19:00.

Margrét Katrín Guðnadóttir annast hreinsunina.

  • Hvanneyri 21. nóvember í “gamla BÚT-húsinu” kl. 17:00 – 19:00.

Edda Þórarinsdóttir annast hreinsunina ofangreinda daga.

 Samkvæmt lögum um velferð dýra/reglugerð um velferð gæludýra eiga allir hundar, kettir og kanínur að vera örmerkt og skráð í miðlægan gagnagrunn, www.dyraaudkenni.is.

Skráningarskylda er á öllum hundum og köttum í þéttbýli Borgarbyggðar.

Samkvæmt reglugerð um hollustuhætti nr. 941/2002, 15. kafla, er skylt að ormahreinsa alla hunda 4 mánaða og eldri árlega. Ormahreinsun er innifalin í leyfisgjaldi.

Óskráð gæludýr eru velkomin og geta eigendur nálgast skráningargögn á staðnum.

 Þeir eigendur hunda og katta í þéttbýli Borgarbyggðar sem ekki nýta sér þessa þjónustu þurfa að skila vottorði á skrifstofu Borgarbyggðar fyrir áramót um að dýr þeirra hafi verið hreinsuð annars staðar.

Upplýsingar um samþykkt um hunda- og kattahald í Borgarbyggð er að finna á heimasíðu Borgarbyggðar. Einnig er hægt að hafa samband við Ráðhús í síma 433 7100 eða gegnum netfangið borgarbyggd@borgarbyggd.is.


Share: