Hunda- og kattahreinsun

desember 1, 2011

Lögbundin hunda- og kattahreinsun verður í Borgarbyggð á eftirtöldum stöðum:

– Hvanneyri mánudaginn 5. desember í slökkvistöðinni kl. 17:30 – 19:00.
Edda Þórarinsdóttir annast hreinsunina.

– Bifröst þriðjudaginn 6. desember í kyndistöðinni kl. 16:00 – 18:00.
Gunnar Gauti Gunnarsson annast hreinsunina.

– Borgarnesi miðvikudaginn 7. desember í slökkvistöðinni við Sólbakka. Fyrir hunda kl.
17:00 -19:00. Fyrir ketti kl. 19:15 – 20:00. Gunnar Gauti Gunnarsson annast hreinsunina.

– Reykholt og Kleppjárnsreykir. Til að þjónusta eigendur gæludýra á þessum tveimur
þéttbýlisstöðum mun verða komið við hjá eigendum skráðra gæludýra eftir samkomulagi
þar sem þau eru svo fá. Edda Þórarinsdóttir annast hreinsunina.
Sjá nánar hér
 

Share: