Hnoðraból – leikskólakennari

júlí 1, 2014
Við leikskólann Hnoðraból í Reykholtsdal er laus staða leikskólakennara frá og með 7. ágúst n.k. Um er að ræða fulla stöðu leikskólakennara.
Leikskólinn Hnoðraból er einnar deildar leikskóli. Þar eru að jafnaði 19 börn á aldrinum 18 mánaða til 5 ára og 6-7 starfsmenn.
Menntunar- og hæfniskröfur leikskólakennara:
• Leikskólakennaramenntun
• Færni í mannlegum samskiptum
• Sjálfstæð vinnubrögð
• Skipulagshæfni, frumkvæði og metnaður

Ef ekki fæst leikskólakennari kemur til greina að ráða
starfsmenn með háskólapróf eða aðra
uppeldismenntun og/eða reynslu

Í samræmi við jafnréttisstefnu Borgarbyggðar eru jafnt karlar
sem konur hvött til að sækja um störf hjá sveitarfélaginu.
Í samræmi við lög um leikskóla nr. 90/2008 þurfa þeir sem
ráðnir eru til starfa hjá leikskólum Borgarbyggðar að skila
sakavottorði.
Umsóknarfrestur er til 14. júlí 2014.
Nánari upplýsingar veitir Sjöfn G. Vilhjálmsdóttir leikskólastjóri,
í síma 433-7180 eða 862-0064, eða í tölvupósti; sjofn@borgarbyggd.is
 
 

Share: