Hinseginhátíð Vesturlands í Borgarnesi 9.-11. júlí

júlí 5, 2021
Featured image for “Hinseginhátíð Vesturlands í Borgarnesi 9.-11. júlí”

Fimmtudagur

  • 21: 00 Bara Ölstofa Lýðveldisins hljómsveitin Drusla á bömmer þjófstartar hátíðinni

Föstudagur

Skreytum allt Vesturland í regnbogalitum, hvetjum fólk til að sýna frá undir merkjum helgarinnar #hinseginvest #hinseginvest21

  • Lautarferð í heimahaga

Hittum fólkið okkar og höfum kósý lautarferð með góðum veitingum í okkar heimabyggð seinnipart dags

  • 21:30 Barir bæjarins

Fögnum félaginu Hinsegin Vesturland sem fæddist á zoom fundi í febrúar eftir góða meðgöngu á börum bæjarins

Laugardagur

  • 10:30 Regnboga spinning við íþróttahúsið með Gunnu Dan
  • 14:00 Gleðiganga

Fögnum fjölbreytileikanum og göngum ÖLL saman til að styðja réttindabaráttu hinseginfólks

Gengið eftir Borgarbraut frá Brákarhlíð að Dalhalla

  • Skemmtidagskrá í Dalhallanum og Skallagrímsgarði eftir göngu

Kynnar verða þær Ingileif og María Rut frá Hinseginleikanum

Meðal þeirra sem koma fram eru: Þorbjörg Þorvaldsdóttir formaður Samtakanna ’78,

Hljómlistarfélag Borgarfjarðar, ungt og efnilegt listafólk úr Borgarbyggð, og fleiri.

  • Skallagrímsgarður

Leikhópurinn Lotta í boði Arion Banka kl 16:30

Hoppukastalar kl 10-13 og 16-18

Sölutjöld og almenn gleði

  • 23:00 Hjálmaklettur Ball með engum öðrum en Páli Óskari

Sunnudagur

  • 16:00 Borgarneskirkja Fræðslukaffi

Fyrir þau sem vilja fræðast um sögu sátta og átaka, samkynhneigð í sögu kirkjunnar og réttindabaráttuna á Íslandi.

  • 17:00 Borgarneskirkja Fjölskyldu- og regnbogamessa

Lífleg og nýstárleg fjölskyldumessa sem fagnar fjölbreytileikanum, kærleikanum og litbrigðum regnbogans sem er okkar allra.

 


Share: