Fyrirlestur í Snorrastofu – Skráning örnefna í Borgarfirði

nóvember 5, 2012
Fyrirlestur Ragnhildar Helgu Jónsdóttur um skráningu örnefna í Borgarfirði verður haldinn í Snorrastofu 6. nóvember 2012 og hefst kl. 20.00.
Á síðustu 20 árum hefur verið unnið mikið starf við skráningu og kortlagningu örnefna í Borgarfirði, bæði á vegum Félags aldraðra í Borgarfjarðardölum og sem BS-verkefni í landfræði við Háskóla Íslands. Reynslan hefur sýnt að það er hver að verða síðastur að ná til heimildarmanna sem þekkja örnefnin og staðsetningu þeirra. Undanfarin misseri hefur verið unnið að skráningu örnefnanna í örnefnasjá Landmælinga Íslands og er það besta mögulega leið til að varðveita og miðla þeim mikilvægu heimildum sem felast í örnefnum. Þessi skráning gefur möguleika á margskonar þróunarverkefnum næstu árin, hvort sem það tengist leiðsögn í gegnum snjallsíma, uppbyggingu ferðaþjónustu á svæðinu, miðlun þjóðsagna o.s.frv.
Í fyrirlestrinum verður sagt frá þessum verkefnum sem þarna hafa verið unnin, þeim árangri sem náðst hefur og framtíðarsýn. Að honum standa Snorrastofa, Landbúnaðarsafns Íslands og Félags aldraðra í Borgarfjarðardölum. Hann er styrktur af Menningarráði Vesturlands.
 
Ragnhildur Helga Jónsdóttir er umhverfislandfræðingur að mennt, með meistarapróf frá Háskóla Íslands. Hún starfar sem sérfræðingur í sögu landnýtingar á Íslandi.
 

Share: