Framkvæmdir hafnar við Gunnlaugsgötu

ágúst 24, 2020
Featured image for “Framkvæmdir hafnar við Gunnlaugsgötu”

Fyrir helgi hófust framkvæmdir við Gunnlaugsgötu og því má gera ráð fyrir aukinni umferð vinnuvéla á svæðinu og öðru raski næstu daga.

Eins og staðan er í dag verður gatan ekki lokuð fyrir bíla- og gangandi umferð en íbúar eru vinsamlegast beðnir um sýna aðgát við vinnusvæðið.

Framkvæmdarlok eru áætluð í september.

Íbúar eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Verkefnastjóri hjá Veitum er Helgi Helgason og verkefnastjóri hjá Borgarbyggð er Ragnar Frank. Verktaki er Borgarverk.


Share: